Viðskipti erlent

Órói kominn á markaði á ný

Sæunn Gísladóttir skrifar
Janet Yellen, 
seðlabankastjóri Bandaríkjanna
Janet Yellen, seðlabankastjóri Bandaríkjanna vísir/getty
Eftir sumar þar sem slík ró var yfir alþjóðlegum fjármálamörkuðum að annað eins hafði ekki sést í áratugi virðist óróinn sem einkenndi markaði í byrjun árs kominn aftur á skrið.

Stressvísitala Bank of America Merr­ill Lynch sem mælir óróa á mörkuðum hækkaði allverulega á föstudaginn og hélt áfram að hækka á mánudag og þriðjudag og hefur hefur ekki hækkað svona marga daga í röð í þrjá mánuði. Ríkisskuldabréf lækkuðu og verðið á gulli lækkaði einnig á föstudaginn og héldu lækkanir áfram fram til gærdagsins.

Sérfræðingar telja að nokkur atriði séu að ýta undir þessa þróun, í fyrsta lagi bíða alþjóðamarkaðir eftir því að Janet Yellen, seðlabankastjóri Bandaríkjanna, tilkynni um stýrivaxtahækkun. Hún hefur gefið í skyn á síðustu vikum að hún muni fljótlega hækka stýrivexti á ný, þrátt fyrir marga óvissuþætti í bandaríska hagkerfinu. Í öðru lagi hefur lækkun olíuverðs haft áhrif á markaði. Olíuverð tók dýfu á fimmtudaginn í síðustu viku og hlutabréfin fylgdu eftir á föstudag.

Gengi hlutabréfa í Bandaríkjunum hafa lækkað undanfarna daga.vísir/getty
Ákvörðun um stýrivaxtahækkun hefur eins og reikna mátti með haft veruleg áhrif í Bandaríkjunum þar sem S&P 500 vísitalan lækkaði um 2,5 prósent á föstudaginn, sem var mesta lækkunin í 43 viðskiptadaga. Svipaða sögu er að segja um Dow Jones vísitöluna. Vísitölurnar hækkuðu aftur á mánudag, tóku svo aðra dýfu á þriðjudag, en höfðu um eftirmiðdaginn í gær hækkað það sem af var degi.

Nýmarkaðsríki hafa hins vegar einnig fundið fyrir áhrifum af ákvörðun Yellen, en á mánudaginn hafði MSCI Emerging Markets vísitalan lækkað fjóra daga í röð og hélt lækkunin áfram á þriðjudag og miðvikudag.

Áhyggjur af stjórnarháttum seðlabanka og möguleikum þeirra til að ýta undir hagvöxt eru samtímis þessu að breiðast út í Evrópu. Á mánudaginn greindi The Telegraph frá því að fimmtíu milljarðar punda hefðu horfið af virði fyrirtækjanna á FTSE 100 vísitölunni í London eftir lækkanir í þrjá daga. Lækkanir voru einnig á þriðjudag í Evrópu, þar sem DAX í Þýskalandi, CAC í París, og spænska IBEX-vísitalan lækkuðu. Ýmist höfðu vísitölurnar lækkað eða hækkað um eftirmiðdaginn í gær. Á Asíumarkaði héldu lækkanir áfram í gær, Nikkei-vísitalan í Japan lækkaði um 0,69 prósent, og Topix-vísitalan um 0,62 prósent. 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×