Innlent

Órói í Kötlu: Óvissuástandið fyrst og fremst varúðarráðstöfun

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Eldstöðin Katla er í Mýrdalsjökli.
Eldstöðin Katla er í Mýrdalsjökli. Vísir/GVA.
Lögreglan á Suðurlandi mun fara á þekkta ferðamannastaði í kringum Mýrdalsjökul til þess að athuga hvort að ferðamenn gisti á stöðum sem teljast í hættu komi til flóða gjósi Katla. Almannavarnardeild lögreglustjórans á Selfossi fundaði með lögregluyfirvöldum á Suðurlandi í kvöld til þess að fara yfir stöðu mála. Óvissuástandið og aðgerðir yfirvalda á svæðinu eru fyrst og fremst varúðarráðstafanir að sögn lögreglufulltrúa.

Líkt og komið hefur fram á Vísi var ákveðið að loka veginum að Sólheimajökli, sem er skriðjökull úr Mýrdalsjökli og vinsæll ferðamannastaður, og stöðva allar ferðir upp á jökulinn vegna þess óvissuástands sem nú ríkir vegna skjálftahrinunnar í Mýrdalsjökli. Víðir Reynisson, verkefnastjóri almannavarna hjá lögreglunni á Suðurlandi segir að fyrst og fremst sé um varúðarráðstöfuna að ræða en komi til flóða sé Sólheimajökull vondur staður til að vera á.

„Þessir katlar geta tæmt sig mjög hratt og þó það sé kannski ekki möguleiki á risaflóðum er þetta svo bratt niður. Ef það verður flóð getur það er í gönguleiðirnar upp á jökulinn og að ef einhver væri upp á jöklinum þegar flóð kæmi væri sá hinn sami í mikilli hættu,“ segir Víðir í samtali við Vísi.

Víðir Reynisson lögreglufulltrúi.
Sjá einnig: Lokað fyrir umferð að Sólheimajökli

Lögregla hefur sett sig í samband við stærstu ferðaþjónustufyrirtækin sem sérhæfa sig í jöklaferðum upp á jökulinn. Segir Víðir að þau hafi öll ákveðið að hætta við ferðir upp á Sólheimajökul á morgun þrátt fyrir að fjölmargir ættu bókaðar slíkar ferðir.

Búið er að setja á sólarhringsvakt hjá lögreglunni í næsta nágrenni við Mýrdalsjökul og munu lögreglumenn fara og kanna svæðið í kringum Múlakvísl, Sólheimajökul og Þakgil til þess að athuga hvort að þar séu ferðamenn sem ætli sér að gista á þessum stöðum í tjöldum eða húsbílum yfir nóttina. Segir Víðir að reynist svo vera verði þeim bent á að öruggara sé að finna sér næturgistingu á öðrum stað.

Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjórann á Suðurlandi, hefur lýfst yfir óvissustigi vegna jarðskjálfta í Mýrdalsjökli sem hófust um hádegisbilið 29. september. Vísindaráð almannavarna telur líklegt að hrinan stafi af kvikuhreyfingum í Kötlu, en enn hafa engin merki um gosóróa mælst. Segir Víðir að með þessum varúðarráðstöfunum séu menn að hafa vaðið fyrir neðan sig komi til eldgoss.

Sjá einnig: Óvissustigi lýst yfir vegna Kötlu

Eftir nóttina verður staðan metin á ný og nýjustu gögn skoðuð en Veðurstofa Íslands, Almannavarnir og lögregluyfirvöld fylgjast vel með þróun mála í Mýrdalsjökli. Eftirfarandi atburðarrásir eru taldar líklegastar af Almannavarnarnefnd.

1. Jarðskjálftahrinan hættir án frekari atburða.

2. Jökulhlaup kemur fram í ám vegna minniháttar eldgoss eða tæmingar á jarðhitakötlum.

3. Eldgos hefst í Mýrdalsjökli sem nær að brjóta sér leið í gegnum jökulinn. Afleiðingar gætu verið jökulhlaup í ám sem renna frá jöklinum ásamt öskufalli.


Tengdar fréttir

Lokað fyrir umferð að Sólheimajökli

Lögreglan á Suðurlandi hefur tekið ákvörðum um að loka fyrir umferð á veginum að Sólheimajökli vegna yfirstandandi jarðskjálftahrinu í Mýrdalsjökli.

Óvissustigi lýst yfir vegna Kötlu

Ríkislögreglustjórinn í samráði við lögreglustjórann á Suðurlandi hefur lýst yfir óvissustigi vegna jarðskjálfta í Mýrdalsjökli

Vísindamenn "misstu“ af nýlegum eldgosum

Nokkur eldgos virðast hafa orðið undir jökli og í sjó við Ísland á undanförnum árum án þess að vísindamenn hafi greint þau fyrr en eftirá.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×