Innlent

Ormasalsað innkallað

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Lifandi ormar fundust í sambærilegri sósu.
Lifandi ormar fundust í sambærilegri sósu.
Nathan & Olsen hefur ákveðið að innkalla Old El Paso salsasósur frá fyrirtækinu en innköllunin kemur í kjölfar fregna af lifandi ormum sem fundust í sósunni á Reyðarfirði fyrir helgi.

Þetta staðfestir starfsmaður fyrirtækisins í samtali við Vísi. Sýnishorn af vörunni verður sent til erlendra framleiðanda hennar.

Farið var fram á innköllunina nú á föstudag en hún tekur sérstaklega til „Old El Paso – Chunky salsa“. 

Innköllunin hefur gengið vel fyrir sig og samkvæmt heimildum Vísis er til að mynda búið að innkalla allar Old El Paso sósurnar sem til voru á Reyðarfirði, þar sem ormamálið kom upp á sínum tíma.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×