Lífið

Orlando Bloom er aðeins frægari eftir slagsmálin

Justin Bieber og Orlando Bloom
Justin Bieber og Orlando Bloom Vísir/Getty/Getty
Orlando Boom, reyndi að rétta unglingastjörnunni Justin Bieber einn á snúðinn á skemmti- og veitingastað á Íbísa í gær, en Bloom virðist hafa fjölgað aðdáendum sínum í kjölfarið.

Slagsmálin urðu þegar Bieber heilsaði kvikmyndastjörnunni full kumpánlega að mati Bloom.

Það sem svo hefur vakið nokkra athygli í slúðurheimi hinna frægu er að strax í kjölfar atviksins birti svo Bieber mynd af fyrrverandi konu Orlando Bloom, fyrirsætunni 
Miröndu Kerr, og er það vatn á myllu þráláts orðsróms þess efnis að Bieber hafi farið á stefnumót með henni meðan þau Bloom voru enn gift, árið 2012.

Þá hefur Bloom einnig sést með fyrrverandi kærustu Biebers, Selenu Gomez.

Aðeins nokkrum mínutum eftir atvikið hófu svokallaðir Beliebers, aðdáendur Biebers, að tísta um atburðinn - en það sem er merkilegt í þessu öllu saman er hversu margir þökkuðu Bloom fyrir að gera það sem þá hafði dreymt um í mörg ár: að kýla Justin Bieber.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×