Innlent

Orkuveitan hlýtur Hvatningarverðlaun jafnréttismála 2015

Atli Ísleifsson skrifar
Orkuveita Reykjavíkur hefur um árabil unnið markvisst að því að jafna stöðu kynjanna á öllum sviðum fyrirtækisins.
Orkuveita Reykjavíkur hefur um árabil unnið markvisst að því að jafna stöðu kynjanna á öllum sviðum fyrirtækisins. Mynd/Atvinnuvegaráðuneytið
Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, afhenti í dag Bjarna Bjarnasyni, forstjóra Orkuveitu Reykjavíkur, Hvatningarverðlaun jafnréttismála. Í frétt atvinnuvegaráðuneytisins segir að OR hafi um árabil unnið markvisst að því að jafna stöðu kynjanna á öllum sviðum fyrirtækisins.

Markmiðið með verðlaununum er að vekja athygli á fyrirtækjum sem sett hafa jafnrétti á oddinn og jafnframt að hvetja önnur fyrirtæki til þess að gera slíkt hið sama.

Í rökstuðningi dómnefndar segir meðal annars að OR hafi stigið veigamikil skref til jafnréttis og sé í markvissri vinnu við að jafna stöðu kynjanna og hafi stuðlað að framgöngu fjölda verkefna í samstarfi við menntastofnanir, til að fylgja eftir því markmiði að efla hlut kvenna í karllægum geira. „Samhliða því hafi fyrirtækið unnið markvisst að því að breyta vinnuumhverfinu þannig að það henti betur þörfum beggja kynja, meðal annars með auknum sveigjanleika og styttingu vinnutíma til að stuðla að auknu jafnvægi milli vinnu og fjölskyldulífs.“

Verðlaunin veitt í annað sinn

Að baki Hvatningarverðlaunum jafnréttismála standa auk atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis, landsnefnd UN Women á Íslandi, Samtök atvinnulífsins og Festa - miðstöð um samfélagsábyrgð.

Verðlaunin eru nú veitt í annað sinn en á síðasta ári féllu þau í skaut Rio Tinto Alcan. Verðlaunin eru veitt fyrirtæki sem hefur stuðlað að auknum möguleikum beggja kynja til starfsframa, jöfnum launum kynjanna, jöfnum hlutföllum kynjanna í stjórnendastöðum og aukinni vitund um þann ávinning sem jafnrétti hefur fyrir fyrirtækið og samfélagið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×