Heilsa

Orkubitar- frábærir milli mála

Rikka skrifar
Frábærir bitar milli mála
Frábærir bitar milli mála Mynd/Rikka
Orkubitarnir eru tilvaldir til að narta í á milli mála eða þegar sykurlöngun gerir vart við sig.

Orkubitar

250 g döðlur

50 g ósætt kakó

60 g chia fræ

1 msk kókosolía

1/2 tsk kanill

1/2 tsk vanilludropar

50 g hýðislausar möndlur, saxaðar

50 g pekanhnetur, saxaðar

50 g þurrkuð trönuber

1/2 tsk rifinn appelsínubörkur

örlítið sjávarsalt

Maukið döðlurnar í matvinnsluvél, bætið kakói, chia fræum, kókosolíu, kanil og vanilludropum saman  og blandið vel. Bætið hentunum saman við og "blandið þær gróft saman" við döðlumaukið.Handhrærið trönuberin, appelsínubörkin og saltið saman við. Mótið litlar kúlur úr deiginu og geymið í kæli eða frysti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×