Innlent

Orku Energy ferðin sú fyrsta sinnar tegundar

Fanney Birna Jónsdóttir skrifar
Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra var meðal annars viðstaddur samningsundirritun Orku Energy í Reykjavík í desember 2013.
Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra var meðal annars viðstaddur samningsundirritun Orku Energy í Reykjavík í desember 2013. Mynd/Orka Energy
Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra segir að vinnuferð ráðuneytisins til Kína þar sem hann sat meðal annars fundi með jarðavarmafyrirtækinu Orka Energyhafi verið sú fyrsta sinnar tegunar í ráðherratíð hans.

Illugi starfaði fyrir Orku Energy sem ráðgjafi meðan hann var í leyfi frá þingstörfum eftir bankahrunið og hafa vinnuferðir hans til Kína með fulltúum fyrirtækisins eftir að hann tók við embætti ráðherra vakið athygli.

Aðspurður um hvort hann hafi farið í fleiri sambærilegar utanlandsferðir í ráðherratíð sinni til að greiða götur íslenskra orkufyrirtækja eða annarra segir hann svo ekki vera.

„Komi til fleiri slíkra ferða til annarra landa, verður leitast við að aðstoða íslensk fyrirtæki sem þar starfa eftir föngum, sérstaklega þau sem starfa á sviði hátækni og vísinda,“ segir Illugi í svari við fyrirspurn Fréttablaðsins.

Illugi segir íslenska ráðamenn á undanförnum árum hafa stutt við starfsemi Orku Energy í Kína.

„Jóhanna Sigurðardóttir, Össur Skarphéðinsson, Katrín Jakobsdóttir og Guðbjartur Hannesson hafa öll verið vitstödd undirritanir samninga sem Orka Energy hefur gert við samstarfsaðila sína í Kína. Þessi starfsemi Orku hefur leitt til þess að tugir íslenskra vísindamanna og sérfræðinga á sviði jarðhita hafa fengið störf vegna jarðhitaverkefna Orku í Kína,“ segir Illugi.

Styður starfsemina Íslenskir ráðamenn hafa áður stutt við starfsemi Orku Energy í Kína, þar á meðal Jóhanna Sigurðardóttir, Össur Skarphéðinsson, Katrín Jakobsdóttir og Guðbjartur Hannesson, segir Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra. Fréttablaðið/GVA
Illugi gefur ekki upp fjárhæð greiðslna Orku Energy fyrir störf hans hjá fyrirtækinu en bendir á að nálgast megi upplýsingar um tekjur hans á þeim árum í opinberum gögnum. Hann segist aðeins hafa unnið fyrir fyrirtækið meðan hann var utan þings, verkefnin hafi klárast á árinu 2012 og þess vegna hafi hann getið um þau í hagsmunaskráningu Alþingis, sem síðan hefur farist fyrir að uppfæra.

Illugi segist einnig hafa starfað fyrir fleiri fyrirtæki meðan hann var utan þings, þar á meðal að verkefnum í Asíu. Meðal þeirra verkefna var skoðun á möguleikum á markaðssetningu á snyrtivörum líftæknifélagsins Orf í Asíu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×