Enski boltinn

Origi og Coutinho á skotskónum í sigri Liverpool

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Coutinho skoraði seinna mark Liverpool gegn HJK.
Coutinho skoraði seinna mark Liverpool gegn HJK. vísir/getty
Liverpool vann 0-2 sigur á HJK, toppliði finnsku úrvalsdeildarinnar, í æfingaleik í Helsinki í dag.

Staðan var markalaus í hálfleik en belgíski framherjinn Divock Origi kom Liverpool yfir á 73. mínútu eftir stoðsendingu James Milner.

Milner var svo aftur á ferðinni sex mínútum síðar þegar hann lagði upp mark fyrir Philippe Coutinho.

Þetta var næstsíðasti æfingaleikur Liverpool áður en enska úrvalsdeildin hefst. Rauði herinn mætir Swindon Town á morgun í síðasta æfingaleiknum áður en alvaran hefst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×