Menning

Orgeltónleikar í minningu Jóns Stefánssonar

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Lára Bryndís ásamt syni sínum Ágústi Ísleifi.
Lára Bryndís ásamt syni sínum Ágústi Ísleifi. Vísir/Andri Marinó
Lára Bryndís Eggertsdóttir organisti heldur orgeltónleika í Langholtskirkju á morgun, sunnudag, klukkan 17 og helgar þá minningu Jóns Stefánssonar organista. Nokkur af uppáhaldsverkum hans eru á efnisskránni.

Lára Bryndís mun kynna tónlistina milli verka og lofar hátíðlega að spila bara eitthvað fallegt.

Fyrstu skrefin á orgelbrautinni tók Lára Bryndís 14 ára gömul þegar hún tók að sér að leika í guðsþjónustum í Langholtskirkju í forföllum Jóns Stefánssonar. Nú starfar hún sem organisti við Sønderbro kirkju í Horsens og semballeikari hjá barokksveitinni BaroqueAros í Árósum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×