Matur

Oreo-bollakökur - UPPSKRIFT

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar

Oreo-bollakökur

 
Kökur

200 g hveiti

200 g sykur

200 g mjúkt smjör

4 egg

1 tsk lyftiduft

1 pakki Oreo-kex



Krem

200 g mjúkt smjör

200 g flórsykur



Hitið ofninn í 190°C. Blandið hveiti, sykri, smjöri, eggjum og lyftidufti vel saman. Myljið allt Oreo-kexið nema 3 til 4 kökur og blandið saman við deigið. Setjið í möffinsform og bakið í 20 til 22 mínútur. Leyfið kökunum að kólna á meðan þið gerið kremið.

Takið kremið úr þessum 3 til 4 kökum sem þið skilduð eftir og myljið þær fínt í matvinnsluvél. Blandið smjöri og flórsykri vel saman og því næst Oreo-mylsnunni. Skreytið kökurnar og njótið!

Fengið hér.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×