Lífið

Oreo-bollakökur - UPPSKRIFT

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar

Matgæðingurinn Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir býður upp á alls kyns uppskriftir á sínu bloggi. Hér deilir hún uppskrift að eftirrétti sem er dísætur og dásamlegur.

Oreo-bollakökur með hvítsúkkulaðikremi

20-24 bollakökur

250 g smjör, við stofuhita

4 dl sykur

4 egg

4-5 dl mjólk (eða rjómi)

6 dl hveiti

2-3 tsk. lyftiduft

1 tsk. matarsódi

2 tsk. vanillu-extract (eða vanillusykur)

16 Oreo-smákökur (1 pakki)

1. Hitið ofninn í 180°C (blástur)

2. Þeytið saman smjör og sykur í þrjár mínútur, bætið einu og einu eggi saman við. Þeytið vel á milli.

3. Sigtið saman hveiti og lyftiduft a.m.k. þrisvar sinnum. Bætið hveitiblöndunni, matarsódanum, vanillunni og mjólkinni saman við og þeytið mjög vel í nokkrar mínútur þar til blandan verður orðin silkimjúk.

4. Hakkið Oreo-smákökurnar í blandara eða þá bara með handaflinu í mjög smáa bita.

5. Skiptið deiginu niður í bollakökuform og bakið í 15-18 mínútur. Kælið kökurnar mjög vel áður en þið smyrjið á þær kremi.

Hvítt súkkulaðikrem

220 g smjör, við stofuhita

4 dl flórsykur

2 tsk. vanillu-extract eða vanillusykur

140 g hvítt súkkulaði

Þeytið saman smjör og flórsykur í nokkrar mínútur, því lengur sem þið hrærið kremið því betri áferð verður á því. Bræðið hvítt súkkulaði í vatnsbaði og bætið við smjörkremið ásamt vanillu. Blandið öllu vel saman þar til kremið verður orðið ansi létt, ef þið ætlið að nota matarlit þá bætið honum við rétt í lokin.

Ég skreytti kökurnar með Oreo-smákökum, einfaldlega vegna þess að ég fæ ekki nóg af þessum kökum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×