Skoðun

Orðstír þjóðar

Salvör Jónsdóttir skrifar
Á dögunum birtist viðtal í vikublaði við glæsilegasta „sendiherra“ okkar Íslendinga. Hér er átt við mann sem hefur á eigin verðleikum orðið fulltrúi Íslands á erlendri grund. Hann hefur hlotið heimsathygli fyrir hæfileika, framkomu, túlkun á mennsku og náttúru og við erum stolt að hann skuli vera Íslendingur. Það skiptir máli hverjir eru kynntir til leiks á erlendri grundu sem Íslendingar, því við erum þátttakendur í samfélagi þjóða, við erum ekki einangrað eyland sem betur fer, framkoma okkar og orðspor skiptir máli.

Söngvarinn góði sem ég vísa til hér að ofan, sagði meðal annars frá því í viðtalinu hversu erfitt það væri að starfa erlendis þegar orðspor þjóðarinnar væri svert. Því miður höfum við orðið fyrir því óþarflega oft síðastliðinn áratug. Þó svo að stjórnvöld haldi því fram að orðspor okkar hafi ekki skaðast að undanförnu, gengur það þvert á reynslu okkar margra sem störfum erlendis. En í slíkum hremmingum felast tækifæri til að bæta fyrir það sem farið hefur úrskeiðis, við getum sýnt umheiminum að hér búi hugsandi fólk, sem lærir af reynslu og er tilbúið til að skapa bjarta framtíð fyrir land og þjóð.

Nú á næstunni gefst þjóðinni tækifæri til að velja einstakling í embætti forseta, „sendiherra“ sem mun verða kynntur sem fulltrúi þjóðarinnar á erlendri grund. Við erum svo heppin að eiga ungt og vel meinandi fólk sem er tilbúið til að taka að sér þetta verkefni. En við getum aðeins valið einn í þessum mikilvægu kosningum. Við þurfum að velja einstakling sem mun standa vörð um það sem er dýrmætast og gerir okkur að Íslendingum; landið, þjóðina og tunguna. Andri Snær Magnason er augljós valkostur. Hann hefur nú þegar vakið athygli um víða veröld fyrir hæfileika sína. Hér heima hefur hann verið óþreytandi að benda á mikilvægi þess að við fórnum ekki náttúru landsins fyrir tálsýn eða stundargróða, heldur byggjum upp framtíð fyrir komandi kynslóðir þar sem virðing er borin fyrir landi rétt eins og þjóð og tungu. Andri Snær hefur náð einstaklega vel til ungra lesenda um allan heim með skrifum sínum og boðskap. Það er ekki hægt að segja börnum að bækur séu góðar, en þau skynja hinsvegar hið fagra, góða og sanna.  

Frjór hugur Andra Snæs og góðir hæfileikar hans til samskipta og samvinnu munu gera hann að afbragðs fulltrúa þjóðarinnar bæði innanlands og utan.




Skoðun

Sjá meira


×