Skoðun

Orðsending til jólasveina

Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar

Nú eru jólasveinar farnir að koma til byggða með ýmislegt spennandi í skóinn fyrir börnin. Við Íslendingar látum okkur ekki nægja einn jólasvein – eins og flestar þjóðir gera – heldur 13 sem koma einn af öðrum. Það hljóta að fylgja þessu gjafastússi mikil útgjöld á jólasveinaheimilinu. Það virðist einnig hafa orðið mikil gjafabóla hjá jólasveinum undanfarin ár eða áratugi, þar sem hér á árum áður voru gjafir mun minni. Þá fengu krakkar gjarnan ávöxt og kannski örlítið sælgæti um helgar. Svo virðast jólasveinar líka mismuna börnum frekar nú en áður fyrr, þar sem sum barnanna fá mjög dýrar og stórar gjafir, sem komast jafnvel ekki í neina skó, á meðan önnur fá litlar gjafir. Kæru jólasveinar, ég hef áður skrifað ykkur bréf og bent ykkur á að samkvæmt barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna má ekki mismuna börnum vegna stöðu þeirra eða foreldra þeirra. Mig langar að benda ykkur á að það væri kannski skynsamlegt að koma á samvinnu við foreldrafélög í leikskólum og grunnskólum um að setja einhver viðmið um gjafir frá ykkur, því börn tala saman og bera sig saman.



Samt er það svo að dýrmætustu gjafirnar fara ekki í skó. Þær eru endingargóðar og einstaklega umhverfisvænar. Þær enda ekki í ruslinu eftir jólin, þær þarf ekki einu sinni að endurvinna. Þær munu endast börnunum alla ævi og vaxa og dafna hjá barninu með tímanum. Þessar gjafir stuðla að auknum þroska og bættri sjálfsmynd barnanna. Þetta eru dýrmæt þroskaleikföng, en kosta samt sáralítið sem ekkert. Ég veit, kæru jólasveinar, að það er erfitt fyrir ykkur að gefa börnunum þessar gjafir sjálfir, en þið getið ef til vill gert samning við foreldra barnanna.



Stærstu og bestu gjafirnar

Stærstu og bestu gjafirnar sem börnin fá er tími með foreldrum sínum og fjölskyldu, umhyggja, gleði, umburðarlyndi, samvera og samtal, vinátta, virðing, hrós, bros, faðmlag, uppörvun, stuðningur, kærleikur, að spila saman, lesa saman, baka saman, horfa á jólamynd saman, taka til saman (og taka kannski aðeins minna til), bjóða vinum heim og svo mætti lengi telja. Þessar gjafir fást ekki fyrir peninga en eru afar endingargóðar og mikilvægt innlegg í andlega velferð barnanna til framtíðar. Þessar gjafir byggja upp sjálfsmynd og sterkan einstakling. Með því að gefa þessar dýrmætu gjafir er þar að auki verið að tryggja að börn njóti þeirra réttinda sem þau eiga samkvæmt Barnasáttmálanum. Samkvæmt honum eiga börn rétt á umhyggju og vernd, að njóta leiðsagnar og stuðnings foreldra sinna og að umgangast þá báða. Þau eiga rétt á að lifa og þroskast, líkamlega, andlega og félagslega. Til þess þurfa þau ekki síst að hafa tækifæri til að byggja upp sterka sjálfsmynd, njóta samveru og hvatningar. Þau þurfa líka að læra að meta það sem þau eiga og fá. Börn eiga hins vegar ekki rétt á að öðlast allt það sem hugurinn girnist og að allar þeirra óskir séu uppfylltar. Slíkt getur flokkast sem ofdekur og í raun er ofdekur ein birtingarmynd vanrækslu, sem enginn vill gerast sekur um.



Kæru jólasveinar. Þið megið líka hugsa til barna sem lenda í einelti og styðja verkefni sem miða að því að koma í veg fyrir einelti. Með því að fara inn á jolapeysan.is getið þið styrkt Vináttu, forvarnarverkefni Barnaheilla – Save the Children á Íslandi gegn einelti í leikskólum, en þangað má gjarnan rekja rætur eineltis.

Við hjá Barnaheillum óskum ykkur að lokum gleðilegra jóla, með von um að hátíðin muni færa ykkur gleði, frið og samveru.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×