Innlent

Orðin kafrjóð af reiði vegna matarbakka eldri borgara

Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar
Í bakkanum var marglitt og þurrt kjöt sem Erna vissi ekki hvort væri af svíni eða kind.
Í bakkanum var marglitt og þurrt kjöt sem Erna vissi ekki hvort væri af svíni eða kind. Fréttablaðið/stefán
Um áramótin tók ISS við matarþjónustu eldri borgara í Hafnarfirði. „Hún var ánægð með þetta fyrir áramót, fannst þetta ljómandi,“ segir Erna Hannesdóttir og vísar þar til æskuvinkonu sinnar sem þarf vegna heilsubrests að fá sendan mat til sín daglega.

Erna hafði samband við Fréttablaðið því henni var nóg boðið þegar hún sá matarbakka dagsins frá ISS en vinkonan er hlédræg og vill alls ekki láta hafa fyrir sér.

„Hún er svo sáttfús og þakklát fyrir allt sem hún fær. Hún passar sig að verða ekki fyrir. En þegar ég kom í dag sá ég bakkann á borðinu og ekki búið að snerta á matnum. Í bakkanum var marglitað og þurrt kjöt. Ef þetta væri í ísskápnum manns myndi maður henda því. Alveg ógeðslegt. Þá sagði hún mér að síðasta mánuðinn væri maturinn búinn að vera mjög ólystugur,“ segir Erna.

Erna Hannesdóttir
Til að mynda fékk vinkonan sendan þorramat þar sem súrsaðir hrútspungar voru settir ofan á hangikjötsbita. Soðinn fiskur var allur blautur í polli af soði í bakkanum. Og öllum máltíðum fylgir stór skammtur af hvítu brauði. Erna segir að það sé greinilega hugsað meira um uppfyllingu en næringuna.

„Fólk má vera ansi hungrað til að borða þennan mat. Það vantar alla tilfinningu í matarbakkana og svo eru svo margir sem þurfa á þessari þjónustu að halda sem kvarta bara í sínu horni. Ég vil aftur á móti leggja allt mitt til að þessu verði breytt. Svona er ekki hægt að koma fram við fólk og mér finnst eins og það sé talað fyrir daufum eyrum nema það sé fjallað um málið í blöðunum. Ég hef aldrei gert slíkt áður en núna varð ég alveg kafrjóð af reiði.“

„Það hafa borist einhverjar kvartanir,“ segir Rannveig Einarsdóttir, sviðsstjóri fjölskylduþjónustu Hafnarfjarðar. „Eins og vill verða þegar gerðar eru breytingar.“

Hafnarfjarðarbær bauð út matarþjónustu eldri borgara um áramót. Tvö tilboð bárust. Annars vegar frá þjónustuaðilanum sem hafði verið með matinn og hins vegar ISS. ISS var með lægra tilboð. „Við skráum allar kvartanir og komum þeim til fyrirtækisins. Við viljum að þetta gangi upp og að fólk sé ánægt. Þannig að við bætum úr eins og við getum,“ segir Rannveig.

Í síðustu viku kom fram í könnun í Fréttablaðinu að Hafnarfjarðarbær var með lágt verð á mat fyrir eldri borgara og hæstu niðurgreiðsluna af sveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins. „Við erum ánægð með það en við viljum líka hafa gæðin í lagi og komum til með að fylgja þessu eftir,“ segir Rannveig. 


Tengdar fréttir

Matarbakkar þriðjungi dýrari hjá Kópavogsbæ

Ódýrasti maturinn fyrir eldri borgara á höfuðborgarsvæðinu er í Reykjavík. Heim­sendir matarbakkar eru 35 prósent dýrari í Kópavogi en í Reykjavík. Í Mosfellsbæ er dýrasta staka máltíðin og Hafnarfjörður er með hæstu niðurgreið




Fleiri fréttir

Sjá meira


×