Viðskipti innlent

OR hagnast um fimm milljarða

Sæunn Gísladóttir skrifar
Rekstrartekjur OR námu 20,96 milljörðum króna á fyrri helmingi ársins.
Rekstrartekjur OR námu 20,96 milljörðum króna á fyrri helmingi ársins. Vísir/stefán
Á fyrri helmingi ársins 2016 skilaði rekstur Orkuveitu Reykjavíkur fimm milljarða króna hagnaði, samanborið við 2,3 milljarða hagnað á sama tíma árið 2015. Rekstrartekjur námu 20,96 milljörðum króna á fyrri helmingi ársins og hækkuðu milli ára. aunakostnaður hefur hækkað í samræmi við nýlega kjarasamninga. Nettó vaxtaberandi skuldir OR lækkuðu um níu milljarða króna á fyrri hluta ársins.

Um næstu áramót sjá Veitur, dótturfyrirtæki OR sem sér um veiturekstur samstæðunnar, fram á að lækka gjaldskrár fyrir rafmagnsdreifingu og kalt vatn. 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu






Fleiri fréttir

Sjá meira


×