Körfubolti

Öqvist tekur við nýju liði í Svíþjóð

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Hag
Peter Öqvist hefur verið ráðinn þjálfari sænska úrvalsdeildarfélagsins LF Basket.

Öqvist, sem var nýlega landsliðsþjálfari Íslands, hætti hjá Íslendingaliðinu Sundsvall Dragons eftir tímabilið í Svíþjóð í vor.

Hann tekur við starfinu af Fredrik Joulamo en LF Bakset hafnaði í sjöunda sæti deildarkeppninnar í vor. Liðið tapaði svo fyrir Borås Basket í 8-liða úrslitum úrslitakeppninnar eftir hetjulega baráttu, 3-2.

Öqvist verður 38 ára á þessu ári en á engu að síður langan feril að baki sem þjálfari.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×