Lífið

Óprúttinn aðili þóttist vera Halla á Facebook

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Leikkonan, söngkonan og fyrirsætan Halla Vilhjálmsdóttir er ekki par sátt við manneskju að nafni Georgia Grasslington á Facebook.

Georgia sigldi undir fölsku flaggi á samfélagsmiðlinum og notaði myndir af Höllu á síðunni, líkt og að um eigin síðu Höllu væri að ræða.

Samkvæmt Facebook-síðu Georgiu býr hún í Pennsylvaniu í Bandaríkjunum og vinnur hjá Urban Outfitters. Þá þykist Georgia einnig vera Halla á YouTube.

„Guð minn góður. Svo ógnvekjandi. Þetta er óraunverulegt,“ segir Halla.

Hún er búin að tilkynna Georgiu til forsvarsmanna Facebook og var aðgangi huldumanneskjunnar lokað hið snarasta.

Síðu Georgiu hefur verið lokað.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×