Lífið

Öpp sem einfalda lífið

Þjáist þú af valkvíða? Er ekkert skipulag á óskipulaginu? Áttu það til að villast í stórborgum? Gleymir þú innkaupalistanum heima? Ertu búinn að gefast upp á að leita að draumaflíkinni? Ef svarið við einhverri af þessum spurningum var já, þá ertu á réttum stað. Vísir tók saman átta öpp sem gætu bjargað þér á ögurstundu, eða bara hjálpað þér að leysa úr lúxusvandamálunum dagsins.  

Urban Dictionary

Ha? Hvað? Bro? Ertu farinn að halda að barnið þitt tali annað tungumál? Ertu að vinna með tvítugum krökkum sem tala bara í stikkorðum? Skilur þú ekki helminginn af því sem börnin þín skrifa á Facebook eða lesa á Tumblr? Urban dictionary kemur þá til bjargar. Öll nýyrðin og stikkorðin sem þig vantar.

Frítt og fáanlegt hér fyrir Android og hér fyrir iphone 

Tie Right

Ertu að fara í brúðkaup? Er fyrsta stefnumótið í kvöld? Nú eða er tengdó að bjóða þér í mat í fyrsta sinn? Hljóma orð eins og Windsor, Hálfur Windsor og „The Four In Hand Knot“ líkt og geimvísindi í þínum eyrum? Tie right kennir þér á einfaldan og snjallan hátt hvernig þú átt að hnýta bindishnúta og slaufur, líkt og þú hafir aldrei gert neitt annað.

Kostar 0,99$. Fæst r fyrir iPhone og samskonar hér fyrir Android.

iStudiez

Október er að klárast, það styttist óðum í jólaprófin og þú hefur ekki hugmynd um hvar skóladagbókin er. Hvað þá námsáætlunin. Ekki örvænta, Það er ekki orðið of seint að girða sig í brók og taka námið og skipulagið með trompi! Þú getur hætt að kenna hundinum þínum um léleg verkefnaskil, iStudiez tekur skipulagið þitt í nýjar hæðir.

Fæst hér fyrir iPhone og hér er samskonar fyrir Android. Er frítt en hægt að uppfæra í pro fyrir 2.99$.

The Hunt

Æ, varstu að horfa á þátt og getur ekki hætt að hugsa um jakkann sem aðalpersónan var í? Eða sástu kjól á Pinterest sem þú bara verður að eignast! Ekkert mál, taktu mynd af flíkinni, settu hana inn í appið og þú færð að vita hvar þú getur eignast draumaflíkina. Það er svo gott að geta leyst þessi lúxusvandamál á auðveldan hátt.

Frítt og fæst hér fyrir iPhone og hér er samskonar fyrir Android. 

Ulmon-London
Ulmon

Þegar þú ert í Róm þá áttu að vera upptekinn af því að njóta, en ekki villast. Í París áttu að skoða Sacré Cœur, ekki eyða deginum í að leita að henni. Ulmon er besti ferðafélagi sem þú munt nokkurn tíma eignast. Þú velur þinn áfangastað og færð GPS, leitarvél, neðanjarðarlesta­kort og fleira í einu appi. Mundu bara að sækja appið áður en þú ferð og pinna niður áhugaverða staði. Og já, það virkar án netsambands. Vísir gefur þessu appi fullt hús stiga.

Frítt og fæst hér fyrir iPhone og hér fyrir Android. 

iChoose
iChoose

færðu valkvíða í matvöruversluninni? Er erfitt að velja númer af handahófi? Rautt eða blátt? París eða London? Þetta app gefur þér svör við þessu öllu. Já eða nei, velur tölu frá 1-10 og svarar þér hvort pitsa eða sushi er málið í kvöldmatinn. Og að sjálfsögu er skæri blað steinn í appinu líka, hvað annað!

Frítt og fæst hér fyrir iPhone og hér er samskonar fyrir Android. 

Photomath
Photomath

Ertu að reikna? Gleymdu gamla góða Casio, hér erum við að tala um myndavélavasareikni. Ertu ekki viss um að X sé jafnt og tveir? Er barnið þitt að læra heima og spyr þig hvort svarið við dæminu sé rétt og þú hefur ekki hugmynd um það? Photomath tekur mynd af reikningsdæminu og skilar þér réttu svari á augabragði og þú virkar skarpari en skólakrakki. Allir glaðir. Eitt vinsælasta appið í dag. 

Frítt og fæst hér fyrir iPhone og er á leiðinni fyrir Android. 

ShopShop
Shopshop

Viðurkenndu það bara. Þú gleymir alltaf innkaupalistanum heima. Hins vegar gleymir þú aldrei símanum. Þú skrifar innkaupalistann heima í appið og strikar svo vörurnar út af listanum jafnóðum. Ef það liggur þannig á þér þá máttu líka hrista símann til að hreinsa listann. Pör geta deilt innkaupalista og jafnvel bætt á hann á meðan hitt er að versla. Hins vegar má deila um hversu sniðugt það er.

Frítt og fæst hér fyrir iPhone og hér er samskonar fyrir Android






Fleiri fréttir

Sjá meira


×