Lífið

Opnuðu Botnskálann eftir 16 ár til að skjóta nýja stuttmynd

Þórður Ingi Jónsson skrifar
Thelma fékk hugmyndina út frá yfirgefnum kaffihúsum
Thelma fékk hugmyndina út frá yfirgefnum kaffihúsum fréttablaðið/valli
„Það er franskur keimur af myndinni og dass af súrrealisma, ég vil leyfa hugtakinu „raunverulegt“ að vera svolítið teygjanlegt,“ segir Thelma Marín Jónsdóttir, leikkona og söngkona sem hefur nú leikstýrt fyrstu stuttmynd sinni, Nachtcafé.

Myndin gerist á á hinu dularfulla kaffihúsi Nachtcafé sem opnar á miðnætti og er hvorki bundið við ákveðinn stað né tíma. Á þessum fáfarna stað vinnur stórskrýtin þjónustudama sem er eiginlega föst í hlutverki hinnar dæmigerðu amerísku þjónustustúlku. Eitt kvöldið kemur inn par sem á í erjum og eftir að hafa orðið vitni að því uppgötvar þjónustustúlkan eitthvað nýtt um sjálfa sig – hún uppgötvar dansinn.

Thelma, sem leikur í Stelpunum á Stöð 2 í haust, lét gera upp Botnskálann í Hvalfirðinum fyrir myndina en hann hefur ekki verið starfræktur í 16 ár. „Ég bjó í Berlín í fyrra og hjólaði daglega fram hjá yfirgefnu rykföllnu kaffihúsi sem á stóð „Nachtcafé“. Þetta kaffihús sótti á mig og vakti athyglina mína, þannig að ég fór að fantasera um þetta kaffihús. Ég keyri mjög reglulega í Hvalfirðinum og Botnskálinn, eins og Nachtcafé í Berlín, hefur alltaf fangað athygli mína og orðið uppspretta að einhvers konar fantasíum og sögum. Af þessum tveimur stöðum spratt hugmyndin að myndinni,“ segir Thelma.

Í myndinni leikur einvalalið íslenskra bóhema en þjónustustúlkuna leikur Ásta Fanney Sigurðardóttir, skáld og kærustuparið leika þau Margrét Bjarnadóttir, dansari og Sigurður Atli Sigurðsson, myndlistarmaður, sem Thelma lét fljúga sérstaklega frá Frakklandi yfir til Íslands til að skjóta myndina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×