Skoðun

Opnið búin

Elín Hirst skrifar
Það er ekki ofmælt að almenningur er í hálfgerðu áfalli eftir að upp komst um það að þær aðstæður sem svín búa við voru í í alltof mörgum tilfellum alls ekki í lagi samkvæmt úttekt Matvælastofnunar.

Nú er staðan sú að margir neytendur muni hugsa sig tvisvar um áður en þeir kaupa umrætt kjöt. Það er alveg ljóst að verksmiðjubúskapur, þannig að dýrin þurfi að líða þjáningar, í þeim tilgangi að ná niður verði til neytenda, verður aldrei ásættanlegur.

Innlend svínakjöts- og kjúklingaframleiðsla er hins vegar afar mikilvæg fyrir fæðuframboð á Íslandi. Ljóst er að hjá íslenskum bændum er að finna meiri hreinleika í afurðum en þekkist í innfluttu kjöti vegna þess hve lítið er notað af lyfjum og strangar reglur gilda um að farga skuli sýktu kjöti. Í þessu sambandi er talað um að á Íslandi sé notaður einn fúkkalyfjaskammtur á móti 20 í flestum samkeppnislöndum okkar. Slíkri sýklalyfjanotkun fylgir gríðarleg hætta á að fleiri fúkkalyf verði ónothæf gegn hættulegum sjúkdómum, en sýklalyfjaónæmi verður stöðugt alvarlegra vandamál innan læknisfræðinnar.

Ég spái því að í kjölfar þessara tíðinda muni koma fram skýr krafa frá neytendum um að þeir vilji að það kjöt sem þeir kaupa sé vottað með þeim hætti að það sé framleitt við skilyrði sem samræmast lögum um dýravelferð. Einnig er afar mikilvægt að neytendur geti á umbúðum vöru séð hvaðan kjötið kemur sem notað er í álegg, pylsur og fleira. Er um að ræða innlent eða erlent kjöt og kemur kjötið frá búum sem hlotið hafa gæðavottun um dýravelferð?

Mig langar að biðja þá sem að þessum rekstri standa að nota nú tækifærið og snúa stöðunni við, snúa sókn í vörn. Á fjölda svína- og kjúklingabúa eru hlutirnir í ágætu lagi og það er sárt að búskussarnir skuli draga alla niður í greininni. Því hvet ég svína- og kjúklingabændur til að opna bú sín, bjóða almenningi í heimsókn og útskýra hvernig aðbúnaður dýranna er og ræða opinskátt hvað megi betur fara.




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×