Lífið

Opnar kaffihús en drekkur ekki kaffi

Ragnheiður Tryggvadóttir skrifar
Andri Ólafsson tónlistamaður er með mörg járn í eldinum. Hljómsveit hans, Moses Hightower, verður með tvenna tónleika í næstu viku auk þess sem Secret Swing Society gefur út plötu fyrir jólin. Þá ætlar hann að opna kaffihús eftir áramótin.
Mynd/GVA
Andri Ólafsson tónlistamaður er með mörg járn í eldinum. Hljómsveit hans, Moses Hightower, verður með tvenna tónleika í næstu viku auk þess sem Secret Swing Society gefur út plötu fyrir jólin. Þá ætlar hann að opna kaffihús eftir áramótin. Mynd/GVA
Andri Ólafsson tónlistarmaður hefur í mörgu að snúast. Stífar æfingar Moses Hightower og söfnun á Karolina Fund fyrir plötuútgáfu Secret Swing Society. Þá stefnir hann á að opna kaffihús í Laugardalnum. 



Við hjónin og litli bróðir minn stefnum að því að opna kaffihús í Laugardalnum. Ef allt gengur að óskum gætum við opnað í febrúar. Okkur og mörgum öðrum finnst sárlega vanta heimilislegt kaffihús á þetta svæði,“ segir tónlistarmaðurinn Andri Ólafsson þegar hann er spurður frétta.

Andri syngur og leikur á bassa í hljómsveitinni Moses Hightower og er betur þekktur á tónlistarsenunni en í veitingabransanum. Hefur hann eitthvert vit á kaffi?

„Nei, það er nú eiginlega frekar fyndið að hvorugur okkar bræðra drekkur kaffi af neinu viti,“ segir Andri sposkur. „Ég ábyrgist samt að við espresso­vélina yrðu eingöngu toppmanneskjur, eðalkruðerí á boðstólum og ýmsir góðir drykkir. Við höfum gengið lengi með hugmyndir í þessa átt í maganum, og nú þegar hentugt húsnæði býðst langar okkur að grípa gæsina,“ segir hann og er ekki á honum að heyra að verkefnið vaxi honum mikið í augum.

„Við sjáum allavega ekki fram á verkefnaskort, hjónin. Konan mín er grafískur hönnuður á Íslensku auglýsingastofunni og saman eigum við dóttur á öðru ári. Sjálfur hef ég sveigjanlegan vinnutíma og get aðlagað tímann þörfum dótturinnar. En ef kaffihúsareksturinn bætist við verður sjálfsagt allt á haus næstu misserin, og heimilislífið yrði líklega stillt á „survival mode“ í einhvern tíma. En við förum út í þetta algerlega samstiga og kaffihúsið yrði staðsett í götunni okkar, þetta gæti ekki verið þægilegra,“ segir Andri.

Tónleikar fram undan og nýjar plötur



Tónlistin leikur þó enn sem komið er stærsta hlutverkið í daglegu lífi Andra. Hljómsveit hans, Moses Hightower, æfir stíft þessa dagana fyrir tónleika sem fram undan eru í september, fimmtudaginn 3. september á Húrra og þann 4. á Græna hattinum, og á Karolina Fund hefur hann sett í gang söfnun fyrir plötuútgáfu annarrar hljómsveitar sem hann spilar í, hinni fjölþjóðlegu Secret Swing Society.

„Við í Secret Swing Society tókum upp plötu í febrúar með að meirihluta frumsömdu efni og einu lagi á íslensku, Glans, sem Björgvin Halldórsson syngur og er búið að vera í spilun í útvarpi. Fyrr í vikunni ýttum við af stað söfnun á Karolina Fund fyrir útgáfu plötunnar, og hún kemur vonandi út fyrir jólin.

Núna um helgina gröfum við félagarnir í Moses Hightower okkur niður í Orgelsmiðjunni að vinna í okkar plötu. Við erum að klára nokkur lög, en það er þó næg vinna eftir enn. Þetta er langhlaup hjá okkur þar sem meðlimir hljómsveitarinnar eru ekki allir búsettir á landinu, og við verðum fram á næsta ár að klára plötuna.

Steini er heima núna í fríi frá Of Monsters and Men túr og við reynum að nýta tímann vel meðan hann er heima. Þeir eru samt að verða alveg brjálaðir á mér því ég er með hugann við kaffihúsið allan daginn,“ segir Andri.

Á kafi í tónlist Andri lærði á kontrabassa í fjögur ár úti í Amsterdam og bassinn er hans aðalhljóðfæri. Hann spreytti sig á bakraddasöng með Stuðmönnum á Menningarnótt.Mynd/GVA
Bakrödd hjá Stuðmönnum



Andri lærði á klarínett og píanó sem barn og segist alltaf hafa verið á kafi í tónlist. Á menntaskólaárunum færðist meiri alvara í leikinn, hann söng í Hamrahlíðarkórunum, leiddist út í bassaleik gegnum djassspilamennsku kórfélaga sinna og fáum árum síðar varð Moses Hightower til. Bassinn er hans aðalhljóðfæri en hann stundaði tónlistarnám úti í Amsterdam í fjögur ár, þar sem hann lærði á kontrabassa.

„Ég vinn við tónlist alla daga og fyrir utan Moses og Secret Swing hef ég verið að spila alls konar lausaleiksgigg með hinum og þessum. Núna síðast tók ég, merkilegt nokk, mitt fyrsta bakraddagigg með Stuðmönnum á tónleikum í Eldborg og aftur á Menningarnótt. Það var skemmtilegt. Ég gef mig ekki sérstaklega út fyrir að vera bakraddasöngvari en það er hægt að plata mig út í ýmislegt,“ segir Andri.

Áttu þér uppáhaldstónlistarmann?

„Í raun ekki, þetta er ekki svo einfalt mál. Ég hlusta á alls konar tónlist og sumt af því sem ég hlusta á heyrist í tónlistinni sem ég tek þátt í að skapa í dag en annað ekki. Núna hlusta ég helst á dóttur mína syngja. Ég reyni að ala hana upp á trefjaríkri tónlist.“

Flúði fjósalyktina



Andri er Rangæingur, ólst upp á kúabúi í Austur-Landeyjum ásamt þremur bræðrum og gekk í skóla á Hvolsvelli. Hann yfirgaf þó sveitina snemma og flutti til Reykjavíkur.

„Ég flutti í bæinn 14 ára og hef verið þar síðan. Móðir mín er enn þá kúabóndi, núna á Skeiðunum, og ég fer reglulega í sveitina. Það er þó of djúpt í árina tekið að kalla mig sveitamann. Bústörf eiga ekkert sérstaklega vel við mig og það var alveg ástæða fyrir því að ég flutti til Reykjavíkur,“ segir hann og hlær.

„Það er frábært að hafa aðgang að sveitinni til að slaka á. En ég er voða feginn að þurfa ekki að vera skítugur upp að öxlum úti í fjósi. En ég mun vissulega vinna áfram með mjólkurafurðir, á kaffihúsinu.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×