Innlent

Opnaði nýjan frisbígolfvöll

Dagur B. Eggertsson opnaði fimmta frisbígolfvöll borgarinnar í gær.
Dagur B. Eggertsson opnaði fimmta frisbígolfvöll borgarinnar í gær. Mynd/Reykjavíkurborg
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri opnaði í gær nýjan frisbígolfvöll í Laugardal. Þrír nýir vellir hafa verið opnaðir í borginni í sumar.

„Vellirnir er frábær viðbót í útivistarflóru borgarinnar. Þeir bjóða upp á skemmtilega hreyfingu fyrir alla fjölskylduna. Það sést best á því hvað þeir eru mikið notaðir og ánægjulegt að geta spilað frisbígolf í fimm hverfum borgarinnar: Laugardal, Fossvogsdal og Breiðholti, auk Klambratúns og Gufuness,“ sagði borgarstjóri í tilkynningu Reykjavíkurborgar um opnunina. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×