Viðskipti innlent

Opnað fyrir tilnefningar til Íslensku vefverðlaunanna

Tinni Sveinsson skrifar
Starfsmenn Plain Vanilla taka hér "selfie" eftir að hafa fengið verðlaun fyrir besta appið ársins 2013.
Starfsmenn Plain Vanilla taka hér "selfie" eftir að hafa fengið verðlaun fyrir besta appið ársins 2013. Vísir/Daníel
Það er hætt við því að fólk í íslenska vefbransanum bretti upp ermarnar þessa dagana.

Nú fyrir helgi opnuðu Samtök vefiðnaðarins fyrir tilnefningar til Íslensku vefverðlaunanna, sem haldin verða í Gamla bíói þann 30. janúar.

Að þessu sinni verða veitt verðlaun í fimmtán flokkum en þessi fjöldi endurspeglar breidd verkefna sem vefiðnaðurinn á Íslandi kemur að. Í ár hefur bæst í flóruna nýr flokkur, Besta þjónustusvæðið, sem tekur til aðgangsstýrða þjónustusvæða sem einnig eru oft nefnd Mínar síður.

Opið verður fyrir innsendingar til miðnættis 30. desember 2014. Eru fyrirtæki, stofnanir, félagasamtök og einstaklingar hvattir til að senda inn sína vefi eða verkefni en innsendingar eru öllum opnar.

Íslensku vefverðlaunin eru orðin að árlegum viðburði í íslensku viðskiptalífi en verðlaunin hafa verið veitt frá árinu 2000.

Meðal verðlaunahafa fyrir árið 2013 voru nikitaclothing.com fyrir besta íslenska vefinn, Plain Vanilla fyrir besta appið og alvogen.com fyrir besta fyrirtækjavefinn í flokknum stærri fyrirtæki. Nánar má lesa um verðlaunahafa síðasta árs í tengdri frétt hér fyrir neðan.


Tengdar fréttir

QuizUp með tvenn verðlaun

Nikitaclothing.com var valinn besti vefurinn á íslensku vefverðlaununum, sem afhent voru við hátíðlega athöfn í Gamla Bíói í dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×