Skoðun

Opið bréf til nýrra framkvæmdastjóra á Landspítala

Auðbjörg Reynisdóttir skrifar

Ágætu nýju framkvæmdastjórar Landspítalans.

Samkvæmt upplýsingum frá forstjóranum virðist ráðning ykkar þjóna tvennum tilgangi; að setja „öryggi og flæði sjúklinga í fyrirrúm“ og láta nýjan spítala verða að veruleika. Ég vil því bjóða ykkur velkomin til starfa og dáist að hugrekki ykkar að takast á við verkefni hjá stofnun sem liggur undir ákæru fyrir manndráp af gáleysi.

Forstjórinn fullyrðir að húsnæði spítalans sé stærsta ógnun við öryggi sjúklinga. Þessi fullyrðing hljómar sérkennilega í mínum eyrum því húsnæði og tæki gera ekki mistök. Ég er ein þeirra mörgu sem hafa bitra reynslu af spítalanum og tel mig vita talsvert um öryggi sjúklinga. Það var ekki húsnæðinu að kenna að sonur minn 14 mánaða lést eftir mistök á bráðamóttöku barna í febrúar 2001. Já, það er kannski ástæðan fyrir að ég rita þessar línur því stjórnendum spítalans hefur ekki lánast að ljúka því máli á sómasamlegan hátt.

Þrettán ára gamalt mál er nú á borði ráðherra sem það hefði aldrei átt að vera. Athygli Umboðsmanns Alþingis verður fljótlega vakin á að ráðherrann hefur enn ekki svarað erindi mínu sem hefur velkst fram og til baka í kerfinu sökum vanhæfni stjórnenda til að ljúka því. Ég óska þess að ná sáttum og að fjölskylda mín geti notið þess að treysta þessari stofnun þegar á þarf að halda. Svo er ekki í dag en vonandi kemur sá dagur undir ykkar handleiðslu. Hann kemur ekki með nýjum spítala, því get ég lofað.

Það þarf kjark og auðmýkt

Á veraldarvefnum má finna margar reynslusögur um hvernig mistök í heilbrigðisþjónustu hafa verið markvisst nýtt til að bjarga öðrum frá sambærilegum skaða. Oft hefur frumkvæðið komið frá þeim sem fyrir þessum hörmungum verða. En hér á landi tíðkast ekki að reynsla nýtist á uppbyggilegan hátt þótt ríkur áhugi og vilji sé til staðar hjá þolendum. Mig langar til að sjá það verða að veruleika að sjúklingar og aðstandendur skipti máli og þeir hafi eitthvað um þessi mál að segja. Það var jú meginþemað í ráðstefnu í Hörpu fyrir ári síðan en ekkert hefur breyst. Hvað vantar upp á?

Ég lýsi mig reiðubúna að halda uppbyggilegan fyrirlestur um reynslu mína sem móður af hörmulegu atviki inni á sjúkrahúsinu. Erindi sem allir starfsmenn, stjórnendur og embættismenn ættu að heyra, því það þarf að standa betur að úrvinnslu mistakamála og draga lærdóm af þeim. Lærdóm sem bjargar mannslífum. Það þarf mikinn kjark og auðmýkt af ykkar hálfu til að hlusta. Það mundi valda algerum straumhvörfum í trausti gagnvart þjónustu sem snertir okkur öll. Það er innri starfsemin sem skiptir meira máli en steypa og tæki, og því er margt mikilvægara en að byggja nýjan spítala.

Vilt þú bjarga mannslífum og gera starfsemi spítalans öruggari? Ég er tilbúin að leggja mitt af mörkum og þekki marga í sömu stöðu. Ég þarf bara að heyra frá ykkur því ég þrái ekkert heitar en að dauði sonar míns verði öðrum til bjargar.

Með vinsemd og virðingu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Sjá meira


×