Körfubolti

Önnur stjörnuframmistaða dóttur Curry á blaðamannafundi

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Stephen Curry, besti leikmaður NBA-deildarinnar í körfubolta, mætti aftur með dóttur sína, Riley Curry, á blaðamannafund eftir að Golden State Warriors tryggði sér sigur í vesturdeildinni síðustu nótt.

Sjá einnig:Sparkar Curry öllum hinum fjórum í NBA-liði ársins út úr úrslitakeppninni?

Riley fór á kostum á blaðamannafundi fyrir viku síðan, en þessi smái senuþjófur krúttaði yfir sig og stal sviðsljósinu af pabba sínum.

„Ætlum við að fara í gegnum þetta aftur“ spurði einn pirraður blaðamaður, en viðkomandi vissi líklega ekki að það sem hann sagði heyrðist. Curry tók sem betur fer ekki eftir því.

Riley hoppaði og skoppaði og lék sér með tjald sem var til hliðar við sviðið og stal aftur senunni.

Þessa skemmtilegu senu má sjá í spilaranum hér að ofan.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×