Innlent

Öndunarfæralyf rjúka út á Austurlandi

Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar
Sala öndunarfæralyfja hefur stóraukist á Austurlandi frá því gosið í Holuhrauni hófst. Aukningin er hátt í fimmtíu prósent á Reyðarfirði þar sem hún er mest.

Þetta sýna tölur frá lyfsölum en frá því að gosið hófst hafa vindáttir verið þannig að gosmengunin hefur að mestu farið yfir Norður- og Austurland. Sem þýðir það að íbúar þar hafa margir hverjir fundið verulega fyrir áhrifum hennar.

Ef tekin er saman sala öndunarfæralyfja frá ágúst og út september og borin saman við sömu mánuði árin á undan sést að salan hefur aukist um 31% á öllu Austurlandi. Á Reyðarfirð þar sem mengunin hefur verið hvað mest hefur salan aukist um nærri helming eða 46%.

Um er að ræða sölu á innöndunarlyfjum sem notuð eru við öndunarfærasjúkdómum eins og astma og lungnaþembu.

Pétur Heimisson hjá Heilbrigðisstofnun Austurlands er í reglulega í sambandi við lækna á öllu svæðinu.

„Fyrst og fremst erum við að verða þess vör að þeir sem að hafa öndunarfærasjúkdóma, astma, þeir segja okkur af því að þeir noti meira af lyfjunum sínum. Hafi meiri einkenni og þurfi oftar að grípa til lyfjanna,“ segir Pétur

Björn Árdal ofnæmislæknir hefur mikla þekkingu á astmasjúkdómum. Hann segir gosmengunina hafa farið illa í marga astmasjúklinga og langtímaáhrifin mikil. Sumir hósta mikið og eiga jafnvel erfitt með svefn vegna þess.

Þá segir Björn að fólk sem aldrei áður hafi fundið fyrir astma geti gert það við aðstæður eins og þær sem skapast hafa undanfarið fyrir austan. „Það gæti orðið til þess að fleiri greinast með astma. Það er alveg möguleiki, “ segir Björn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×