Matur

Ómótstæðileg frönsk súkkulaðikaka Berglindar

Rikka skrifar
visir/berglind

Berglind Guðmundsdóttir matarbloggari og eigandi síðunnar Gulur, rauður, grænn og salt gefur lesendum Matarvísi uppskrift af sinni eftirlætisköku. Eins og sést á myndinni þá er kakan hreint út sagt ómótstæðileg.

Frönsk súkkulaðikaka

80 g smjör

100 g suðusúkkulaði

3 egg

3 dl sykur

1 tsk vanilludropar

1 ½ dl hveiti

1 tsk salt

Stillið ofninn á 175°C með blæstri. Bræðið saman smjör og súkkulaði í potti við vægan hita. Þeytið egg og sykur mjög vel saman þar til blandan er létt og ljós. Bætið hveiti og salti varlega saman við eggjablönduna. Bætið súkkulaðinu að lokum út í. Hellið í bökunarform (ég notaði 22cm) og bakið í 15 mínútur í ofninn. Gerið karmellusósuna á meðan. Eftir 15 mínútur takið þá kökuna þá úr ofninum stráið pekanhnetum yfir og hellið síðan karmellusósunni yfir allt og látið aftur inn í ofn í 20 mínútur. Þegar kakan er komin úr ofninum stráið þá söxuðu súkkulaði yfir hana.

Karmellusósa

60 g smjör

1 dl púðursykur

2 msk rjómi

100 g pekanhnetur, grófsaxaðar

100 g suðusúkkulaði, saxað

Bræðið púðursykri og smjöri saman í potti.

Þegar þetta hefur blandast vel saman, bætið þá rjómanum út í og hrærið í um mínútu.

Stundum leik ég mér með það á hvaða tímapunkti ég læt karmelluna yfir. Stundum eftir 15 mínútur og stundum þegar að 5-10 mínútur eru eftir að baksturtíma. Hún breytir aðeins um áferð við það en er sjúklega góð hvernig sem er.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×