Tónlist

Omotrack frumsýnir nýtt myndband á Vísi: "Innihaldið er pínu dramatískt“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hér má sjá mynd af þeim bræðrunum. Markús Bjarnason til vinstri og Birkir Bjarnason til hægri.
Hér má sjá mynd af þeim bræðrunum. Markús Bjarnason til vinstri og Birkir Bjarnason til hægri.
Hljómsveitin Omotrack hefur gefur frá sér nýtt tónlistarmyndband við lagið Close og er það frumsýnt á Vísi í dag.

„Close er fyrsta lagið af fyrstu plötunni okkar Mono & Bright. Lagið fjallar um nýjar upplifanir og mómentið þegar maður kynnist eitthverjum nýjum á sérstakan hátt. Innihaldið er pínu dramatískt, en það má alveg stundum ekki satt?," segir Markús Bjarnason, meðlimur Omotrack, og hlær.

„Þetta verkefni heppnaðist mjög vel en það var hann Árni Beinteinn sem sá upptökur og klippingu tónlistarmyndbandsins. Það myndaðist ákveðið handa-þema í myndbandinu og það er skírskotun í það að vera náinn einhverjum. Maður vill gjarnan teygja hendurnar út í þeirri von að einhver teygir sig á móti," segir Birkir Bjarnason, meðlimur Omotrack.

Hljómsveitin Omotrack hélt veglega útgáfutónleika í Gaflaraleikhúsinu 27. nóvember í tilefni af útgáfu fyrstu breiðskífu sinnar Mono & Bright.

Hægt er að fylgjast betur með sveitinni á facebooksíðu þeirra. Plötuna Mono & Bright er hægt að nálgast á Tónlist.is, Itunes og Spotify.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×