Matur

Purusteik: Ómissandi um jól

Mörgum þykir purusteikin ómissandi um jól.
Mörgum þykir purusteikin ómissandi um jól.

Sjónvarpskokkurinn Eva Laufey Hermannsdóttir gefur uppskrift að dýrindis purusteik.

Purusteik

800 g svínasíða

7–8 lárviðarlauf

10 negulnaglar

Sjávarsalt

Pipar

Vatn



Hitið ofninn í 150°C. Skerið rákir í skinnhliðina á svínasíðuna með 1 cm millibili og setjið í eldfast mót sem búið er að hálffylla með sjóðandi vatni. Stingið lárviðarlaufum og negulnöglum í rákirnar og kryddið til með salti og pipar. Eldið við 150°C í 1,5–2 klst. Eftir eldunartímann takið þið kjötið upp úr fatinu og hellið soðinu frá (sem þið notið í sósu). Setjið kjötið aftur í fatið og hækkið hitann í 220°C og eldið þar til puran verður stökk og gyllt.

Sósa

Soðið af kjötinu

½–1 l rjómi

1 teningur kjötkraftur

1 tsk. sulta

Salt og pipar

Hellið soðinu í pott og bætið rjómanum saman við, kryddið til með kjötkrafti, salti og pipar. Hrærið stöðugt og leyfið suðunni að koma upp, leyfið henni að malla í nokkrar mínútur og bragðbætið að vild.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×