Handbolti

Ómar Ingi í liði umferðarinnar

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Hér má sjá lið umferðarinnar.
Hér má sjá lið umferðarinnar. mynd/facebook
Landsliðsmaðurinn Ómar Ingi Magnússon komst í lið umferðarinnar í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta.

Ómar Ingi átti þá stórleik fyrir lið sitt, Århus, er það gerði jafntefli, 29-29, við Skjern. Þetta er í fyrsta sinn í vetur sem Ómar Ingi kemst í lið umferðarinnar.

Ómar Ingi skoraði átta mörk í leiknum og var markahæstur á vellinum. Hann gaf einnig þrjár stoðsendingar í leiknum.

Ómar Ingi hefur spilað vel í vetur og er í 23. sæti yfir markahæstu leikmenn deildarinnar með 50 mörk í 13 leikjum. Hann er í 14. sæti yfir þá leikmenn sem hafa gefið flestar stoðsendingar í deildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×