Handbolti

Ómar Ingi: Draumur allra að vera í þessari stöðu

Arnar Björnsson skrifar
„Það er bara fínt að vera yngsti maðurinn í landsliðshópnum. Ég finn ekki mikið fyrir því. Þetta er bara gaman,“ segir Ómar Ingi Magnússon sem verður tvítugur í mars og er búinn að skora 11 mörk í 14 skotum.

Hann hefur tekið sjö vítaköst og skorað úr þeim öllum.  Hann reiknar með því að fá jafnaldra sína inn í liðið á næstu árum. Bjóst hann við því að spila með landsliðinu fyrir framan 27 þúsund áhorfendur?

„Nei, ég pældi ekki í því. Það gerist nú ekki oft í handboltaheiminum þannig að ég hlakka mikið til. Það er frábært tækifæri að spila með landsliðinu og draumur hvers og eins að vera í þessari stöðu og ég verð bara að njóta þess.“

Margir eru hissa á hvað þú ert svellkaldur á vítapunktinum, er einhver galdur við þetta?

„Ég veit það ekki. Kannski bara að vera rólegur, horfa á markmanninn og sjá hvað hann er að gera. Ég held að það sé fínt að leyfa óvissunni bara að ráða og sjá hver niðurstaðan verður.“

Þú ert nú ekki búinn að klikka á mörgum vítum á undanförnum árum?

„Nei, nei ég er ágætur í þessu og vonandi heldur það bara áfram,“ sagði hinn rólegi og yfirvegaði Ómar Ingi.

Ekki missa af neinu sem gerist á HM í Frakklandi. Vísir er með öflugt fréttateymi á mótinu sem færir ykkur allar nýjustu fréttirnar af strákunum okkar. Fylgdu okkur á Facebook, Twitter og Snapchat (sport365).


Tengdar fréttir

Allt undir á stærsta sviði í sögu HM

Það verður væntanlega sett áhorfendamet þegar Ísland spilar við Frakkland í 16-liða úrslitum á HM. Leikurinn fer fram á knattspyrnuleikvangi sem er búið að breyta í handboltahöll. Von er á um 28.000 manns.

Óli Guðmunds: Vonandi stöngin inn hjá mér í dag

"Mér hefur liðið nokkuð vel í þessum leikjum hingað til. Við erum komnir í 16-liða úrslit og erum sáttir með það. Þó svo að við hefðum kannski viljað fá annan mótherja. En nú er þetta bara úrslitakeppni,“ segir skyttan Ólafur Guðmundsson.

Ásgeir: Frakkarnir bera mikla virðingu fyrir okkur

Ásgeir Örn Hallgrímsson er búinn að spila í Frakklandi í fimm ár og þekkir því vel til í frönskum handbolta. Hvað segir hann um umfjöllunina um mótið hérna í Frakklandi?

Björgvin Páll: Lofaði Gunnleifi að halda hreinu í dag

Markverðirnir verða sem fyrr í sviðsljósinu í dag og þeirra bíður ekki auðvelt verkefni frekar en annarra. Björgvin Páll Gústavsson var byrjaður að undirbúa sig í gær er hann kom til Lille.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×