Lífið

OMAM nýtti sér nýja tækni og var sýnt beint frá tónleikum í Ástralíu á Facebook

Stefán Árni Pálsson skrifar
Tónleikarnir virtust hafa farið vel fram.
Tónleikarnir virtust hafa farið vel fram. vísir
Íslenska ofursveitin Of Monsters and Men er að slá í gegn um allan heim og fóru fram tónleikar með OMAM í Brisbane í Ástralíu í gærkvöldi.

Nú býður Facebook upp á það að allir notendur samfélagsmiðilsins geta núna sýnt beint frá lífi sínu og þetta er hljómsveitin Of Monsters and Men farin að nýta sér.

Í gærkvöldi var hægt að fylgjast með meðlimum sveitarinnar undirbúa sig fyrir tónleikana í beinni á Facebook og einnig mátti sjá nokkur lög frá tónleikunum í beinni.

Hér að neðan má sjá myndböndin sem voru send út í beinni í gærkvöldi en sveitin hefur deilt þeim á Facebook-síðu sinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×