Skoðun

Ólýðræðisleg vinnubrögð Stúdentaráðs

Stúdentaráðsliðar Röskvu skrifar
Undanfarnar vikur hefur verið uppi umræða um ólýðræðisleg vinnubrögð innan Stúdentaráðs Háskóla Íslands. Umræðan snýr að kosningu nemenda á fulltrúum sínum í æðsta ráð Háskóla Íslands, Háskólaráð.

Fram til ársins 2014 var kosið um umrædda fulltrúa í almennum kosningum annað hvert ár. Um það er kveðið í reglum Háskóla Íslands. Þar stendur að „tilnefning fulltrúa nemenda [í Háskólaráð] skal vera í samræmi við niðurstöðu sérstakrar hlutfallskosningar sem fram fer í febrúar annað hvert ár. Kosnir skulu tveir aðalmenn og tveir varamenn til setu í háskólaráði til tveggja ára.“ Jafnframt stendur þar að „kosningarétt hafa allir skrásettir nemendur Háskóla Íslands“ og að „Stúdentaráð Háskóla Íslands annast framkvæmd kosningarinnar.“

Þessum reglum hefur ekki verið fylgt frá árinu 2014. Ástæðan fyrir því að Stúdentaráð skipaði í ráðið án allsherjarkosninga það ár er sú að Stúdentaráð virðist hafa gleymt að gera ráð fyrir kosningum til Háskólaráðs við gerð nýs kosningakerfis, þar sem kosið er innan sviða háskólans, sem innleitt var árið 2013. Þáverandi forystu Stúdentaráðs var þó gert ljóst að fyrir árið 2016 væri hægt að útbúa kosningakerfi sem gerði allsherjarkosningar til Háskólaráðs mögulegar.

Slíkt kosningakerfi var aldrei útbúið þar sem samþykkt var á stjórnarfundi síðasta Stúdentaráðs í nóvember að sleppa því að halda allsherjarkosningar til Háskólaráðs. Stjórn Stúdentaráðs starfar í umboði Stúdentaráðs og samanstendur af formanni og varaformanni ráðsins ásamt sviðsráðsformönnum þess. Umrædd stjórn tók þessa ákvörðun án þess að leita álits Stúdentaráðs og lagði þar að auki aldrei fram skýrar forsendur fyrir réttmæti ákvörðunarinnar.

Nýkjörið Stúdentaráð sem tók við í maí síðastliðnum hefur nú fundað fjórum sinnum um málið á rúmum tveimur vikum. Stúdentaráðsliðar Röskvu hafa á öllum þessum fundum gagnrýnt vinnubrögð Stúdentaráðs harðlega og lagst gegn þeirri afstöðu sem nýkjörin forysta ráðsins virðist hafa tekið frá byrjun, það er að tilnefna fulltrúa nemenda í Háskólaráð til næstu tveggja ára án allsherjarkosninga. Fulltrúar nemenda í Háskólaráði 2014-16 hafa þar að auki mótmælt þessari afstöðu harðlega og sendu frá sér yfirlýsingu þess efnis á nýkjörið Stúdentaráð á skiptafundi þess 19. maí síðastliðinn.

Þrátt fyrir það samþykkti meirihluti Stúdentaráðs á fundi ráðsins 4. júní síðastliðinn að tilnefna í Háskólaráð án allsherjarkosninga. Stúdentaráðsliðar Röskvu lögðust eindregið gegn því og var tillaga þeirra um lýðræðislegar kosningar felld. Nú stendur til að Stúdentaráð kjósi fulltrúa nemenda í umræddar stöður og hefur fyrrverandi formaður SHÍ, sem lagði til að ekki yrði kosið í ráðið í allsherjarkosningum, boðið sig fram í það. Slík vinnubrögð verða að teljast óeðlileg.

Fráleitt er að hrifsa réttinn frá nemendum til að kjósa sér fulltrúa í æðsta ráð háskólans. Meirihluti Stúdentaráðs virðist vera ósammála því. Við teljum það ótrúlegt í ljósi þeirra gilda sem ráðið þykist standa fyrir. Stúdentaráðsliðar Röskvu harma ákvörðunina.

Stúdentaráðsliðar Röskvu,

Alma Ágústsdóttir

Brynja Helgadóttir

Elinóra Guðmundsdóttir

Elísabet Brynjarsdóttir

Eydís Blöndal

Ingvar Þór Björnsson

Málfríður Guðný Kolbeinsdóttir

Nanna Hermannsdóttir

Ragna Sigurðardóttir

Ragnar Auðun Árnason




Skoðun

Sjá meira


×