Íslenski boltinn

Ólsarar með öruggan sigur á ÍR | Leiknismenn með fullt hús stiga

Egill skoraði eitt í leiknum.
Egill skoraði eitt í leiknum. vísir/ernir
Víkingur Ólafsvík vann öruggan 4-1 sigur á ÍR í A-deild Lengjubikarsins í 3. riðli en Ólsarar eru því komnir með fyrstu stigin sín í vetur í Lengjubikarnum eftir tap gegn ÍA í fyrstu umferð.

Pape Mamadou Faye kom Ólsurum yfir á 9. mínútu en það tók Breiðhyltinga aðeins fimm mínútur að svara. Var þar að verki Hilmar Þór Kárason en Guðmundur Hafsteinsson kom Ólsurum aftur yfir undir lok fyrri hálfleiks.

Egill Jónsson bætti við þriðja marki Ólsara á 54. mínútu og Pape innsiglaði sigurinn á 63. mínútu með öðru marki sínu í leiknum. ÍR-ingar eru því enn án stiga í riðlinum en Ólsarar eru komnir á blað.

Í seinni leik dagsins unnu Leiknismenn 1-0 sigur á Selfyssingum í Egilshöll en það var Bjarki Aðalsteinsson sem skoraði eina mark leiksins á 61. mínútu en með sigrinum komust Leiknismenn í efsta sæti annars riðils A-deildar Lengjubikarsins með fullt hús stiga.

Selfyssingar eru með eitt stig í 4. sæti riðilsins eftir jafnteflið gegn KR í fyrstu umferð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×