Innlent

Ólöf snýr við ákvörðun Sigmundar Davíðs

Atli Ísleifsson skrifar
Innanríkisráðherra hefur skrifað undir reglugerð um umdæmamörk sýslumannsembætta sem taka á gildi um næstu áramót þegar umdæmum sýslumannsembætta fækkar úr 24 í níu.
Innanríkisráðherra hefur skrifað undir reglugerð um umdæmamörk sýslumannsembætta sem taka á gildi um næstu áramót þegar umdæmum sýslumannsembætta fækkar úr 24 í níu. Vísir/GVA
Hornafjörður mun tilheyra umdæmi lögreglustjórans á Suðurlandi samkvæmt ákvörðun Ólafar Nordal innanríkisráðherra. Ólöf hefur því snúið við ákvörðun Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, fyrrverandi dómsmálaráðherra, en hann hafði ákveðið að Hornafjörður skyldi tilheyra umdæmi lögreglustjórans á Austurlandi.

Innanríkisráðherra hefur skrifað undir reglugerð um umdæmamörk sýslumannsembætta sem taka á gildi um næstu áramót þegar umdæmum sýslumannsembætta fækkar úr 24 í níu. „Þá hefur ráðherra skrifað undir reglugerð um umdæmamörk lögregluembætta og verða umdæmin framvegis 9 en þau voru áður 15. Breytingarnar eru meðal þeirra umfangsmestu á umræddum embættum á síðari árum. Hefur undirbúningur staðið lengi yfir og stjórnvöld átt víðtækt samráð við fjölmarga aðila.

Í tengslum við breytingarnar á umdæmaskiptingu lögregluembættanna á Suðurlandi og Austurlandi ákvað innanríkisráðherra að láta gera úttekt á rekstrarforsendum lögreglunnar á Austurlandi. Á grundvelli þeirrar úttektar hefur innanríkisráðherra ákveðið að Sveitarfélagið Hornafjörður skuli tilheyra umdæmi lögreglustjórans á Suðurlandi.

Ný lög um framkvæmdarvald og stjórnsýslu ríkisins í héraði voru samþykkt á Alþingi í maí á þessu ári svo og breyting á lögreglulögum. Ný umdæmamörk embættanna eru ákveðin með reglugerðum eins og áskilið er í lögunum og þar er einnig kveðið á um hvar aðalstöð lögreglustjóra og aðalskrifstofa sýslumanns er í hverju umdæmi. Nýir lögreglustjórar og sýslumenn hafa verið skipaðir í embættin. Núverandi starfsstöðvar verða allar opnar áfram.

Umdæmi sýslumanna

Sýslumenn í umdæmunum 9 eru þessir:

• Þórólfur Halldórsson í umdæmi sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu.

• Ólafur K. Ólafsson í umdæmi sýslumannsins á Vesturlandi.

• Jónas Guðmundsson í umdæmi sýslumannsins á Vestfjörðum.

• Bjarni G. Stefánsson í umdæmi sýslumannsins á Norðurlandi vestra.

• Svavar Pálsson í umdæmi sýslumannsins á Norðurlandi eystra.

• Lárus Bjarnason í umdæmi sýslumannsins á Austurlandi.

• Anna Birna Þráinsdóttir í umdæmi sýslumannsins á Suðurlandi.

• Ásdís Ármannsdóttir í umdæmi sýslumannsins á Suðurnesjum.

• Lára Huld Guðjónsdóttir í umdæmi sýslumannsins í Vestmannaeyjum.

Hin nýju embætti munu taka til starfa mánudaginn 5. janúar 2015 en 2. janúar verða embættin lokuð vegna umfangsmikilla tölvukerfiskerfisbreytinga hjá ríkinu vegna umdæmabreytinganna,“ segir í frétt innanríkisráðuneytisins.

Umdæmi lögreglustjóra

Landið skiptist í 9 lögregluumdæmi. Með lögreglustjórn fara lögreglustjórar sem hér segir:

• Sigríður Björk Guðjónsdóttir lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu.

• Úlfar Lúðvíksson lögreglustjóri á Vesturlandi.

• Karl Ingi Vilbergsson lögreglustjóri á Vestfjörðum.

• Páll Björnsson lögreglustjóri á Norðurlandi vestra.

• Halla Bergþóra Björnsdóttir lögreglustjóri á Norðurlandi eystra.

• Inger L. Jónsdóttir lögreglustjóri á Austurlandi.

• Kjartan Þorkelsson lögreglustjóri á Suðurlandi.

• Ólafur Helgi Kjartansson lögreglustjóri á Suðurnesjum.

• Páley Borgþórsdóttir lögreglustjóri í Vestmannaeyjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×