Viðskipti innlent

Ólöf Snæhólm ráðin til Orkuveitunnar

jón hákon halldórsson skrifar
Ólöf Snæhólm Baldursdóttir upplýsingafulltrúi ..
Ólöf Snæhólm Baldursdóttir upplýsingafulltrúi ..
Ólöf Snæhólm Baldursdóttur hefur verið ráðin í starf upplýsingafulltrúa hjá Orkuveitu Reykjavíkur. Ólöf var einn 125 umsækjenda um starfið og mun hún einkum starfa fyrir Veitur, dótturfyrirtæki OR.

Rekstur Veitna er umfangsmikill. Hitaveitur Veitna þjóna um þremur af hverjum fjórum landsmönnum og Veitur reka einnig rafveitur, vatnsveitur og fráveitur víða á sunnan- og vestanverðu landinu.

Ólöf hefur starfað hjá Slysvarnafélaginu Landsbjörg í rétt tæpan áratug sem upplýsinga- og kynningar­fulltrúi. Hún lauk prófi í fjölmiðlafræði frá Ohio-háskóla í Bandaríkjunum en las svo opinbera stjórnsýslu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×