Sport

Öll þessi landslið sem við eigum núna eru alveg stútfull af karakterum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Viðar Halldórsson, lektor á Félagsvísindasviði í Háskóla Íslands, segir að við Íslendingar getum látið uppeldisstefnuna og afreksstefnuna vinna saman þegar við vinnum með krakkana okkar í íþróttum.

Þjálfun á Íslandi hefur verið mikið í umræðunni að undanförnu eftir að  Sigfús Sigurðsson, fyrrum landsliðsmaður í handbolta, gagnrýndi íþróttaumhverfi barna og unglinga á Íslandi. Sigfús vildi fá meiri keppni inn í íþróttirnar og hætta að verðlauna alla.

„Við höfum náð miklum árangir á báðum stöðum. Við erum með eina mestu þátttöku barna og unglinga í íþróttum og það eru sterk gildi sem fylgja starfinu eins og rannsóknir hafa sýnt. Á hinn boginn höfum við náð miklum árangri í afreksíþróttum því við eigum öll þessi frábæru landslið og þessa frábæru íþróttamenn sem hafa náð árangri á undanförnum árum,“ sagði Viðar Halldórsson sem hefur mikið unnið með íþróttafólk og gert margar rannsóknir.  Rætt var við hann í kvöldfréttum Stöðvar tvö.

„Íslenskt íþróttalíf og íslensk íþróttahreyfing hefur verið að gera margt mjög gott. Samfélagið breytist og áherslur í íþróttum breytast. Við þurfum því að þróast með því,“ sagði Viðar.

„Öll þessi landslið sem við eigum núna eru alveg stútfull af karakterum, mjög sterkum karakterum. Ég hef mjög mikið unnið með ungum íþróttamönnum sem eru að fara upp í meistaraflokka og það vantar oft andlegan styrk og allskonar þætti sem við viljum hafa hjá þessum krökkum. Ég segi að þarna fer uppeldisstefnan og afreksstefnan saman,“ sagði Viðar.

„Ef við vinnum í því að búa til sterkari karaktera með betra sjálfstraust, að búa til betri leiðtoga með sterkari félagsfærni sem kunna að setja sér markmið. Þá erum við að sinna uppeldisstefnunni og skila betri einstaklingum út í samfélagið en við værum líka að skila sterkari einstaklingum til að vera afreksmenn,“ sagði Viðar.

Það má sjá allt viðtalið við Viðar í spilaranum hér fyrir ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×