Tónlist

Öll stærstu nöfnin á sama kvöldinu á ATP

Gunnar Leó Pálsson skrifar
"Þeir sem kvarta yfir þessu eru líklega þeir sömu og myndu kvarta yfir því hversu þungar gullstangir sem þú gæfir þeim væru,“ segir Barry léttur í lundu.
"Þeir sem kvarta yfir þessu eru líklega þeir sömu og myndu kvarta yfir því hversu þungar gullstangir sem þú gæfir þeim væru,“ segir Barry léttur í lundu. Vísir/Getty
Það hefur vakið athygli að flest af þeim stóru nöfnum sem fram koma á ATP tónlistarhátíðinni í ár skuli koma fram á sama kvöldinu, sem er í kvöld. Um er að ræða hljómsveitirnar Run the Jewels, Belle & Sebastian, Iggy Pop og Public Enemy.

Barry Hogan, stofnandi og skipuleggjandi hátíðarinnar, segir ástæðuna fyrir þessu vera einfalda.

„Þetta er eina dagsetningin sem allar þessar hljómsveitir voru lausar. Ef við hefðum viljað láta þær spila á föstudegi eða laugardegi þá hefðu þær ekki spilað á hátíðinni,“ segir Barry.

Spurður hvort að kvartanir hafi borist segist hann ekki hafa orðið var við þær.

„Vissulega eru þessar hljómsveitir mest þekktar en gæðin á þeim hljómsveitum sem koma fram hina dagana eru ekki síðri og sumar jafnvel betri tónleikasveitir. Ef fólk er ekki sátt við þetta þá getur það bara fengið sér dagpassa og þá þarf það ekki að hafa neinar áhyggjur,“ segir Barry og bætir við:

„Þeir sem kvarta yfir þessu eru líklega þeir sömu og myndu kvarta yfir því hversu þungar gullstangir sem þú gæfir þeim væru,“ segir Barry léttur í lundu.

Nokkrir listamenn komu til landsins snemma til þess að skoða landið, til dæmis bandaríska rokkhljómsveitin Deafheaven, bandaríska söngkonan Chelsea Wolfe og nokkrir meðlimir bandarísku hljómsveitarinnar Drive Like Jehu. „Godspeed og Belle & Sebastian ætla líka að nýta tímann á Íslandi til að skoða þetta fallega land,“ bætir Barry við.

Hann hvetur fólk til þess að mæta að sjá stjörnur á borð við Iggy Pop og Public Enemy og segir það einstakt að þessir listamenn séu að koma fram hér á landi.

„Ólíkt Wu-Tang Clan þá eru allir meðlimir Public Enemy að koma. Það er einstakt tækifæri að sjá þá á Íslandi og líka Iggy Pop og Run The Jewels.“

Miðasalan hefur gengið vel og nú þegar hafa tvöfalt fleiri útlendingar keypt sér miða á hátíðina en í fyrra. Hátíðin fer fram á Ásbrú í Keflavík og stendur yfir helgina.


Tengdar fréttir

ATP hefst á fimmtudag: Dagskráin klár

Tónlistarhátíðin ATP á Íslandi hefst fimmtudaginn næstkomandi. Er þetta í þriðja sinn sem hátíðin er haldin og stefnir allt í þrusu hátíð líkt og fyrri ár.

60% kaupenda útlendingar

Gert er ráð fyrir fleiri gestum í ár en í fyrra en um 3.000 miðar hafa selst á ATP-tónlistarhátíðina sem fram fer á Ásbrú í Keflavík 2.-4. júlí.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×