Innlent

Öll hótel fullbókuð svo hann fór til löggunnar

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Fangaklefar á Litla Hrauni.
Fangaklefar á Litla Hrauni. Vísir/Heiða
Maður búsettur fyrir vestan sneri aftur til Íslands eftir ferðalag utan landsteinanna í gær. Í leit sinni að gistingu á höfuðborgarsvæðinu runnu á hann tvær grímur.

Í tilkynningu frá lögreglunni kemur fram að maðurinn hafi lent í þeirri ógæfu að fá hvergi gistingu á höfuðborgarsvæðinu. Öll hótel sem hann hafi leitað til hafi verið fullbókuð.

Maðurinn leitaði því til lögreglunnar og óskaði eftir því að fá að gista fangageymslur sem hann og fékk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×