Golf

Oliver Wilson hafði sigur í Skotlandi

Oliver Wilson les pútt á St. Andrews í dag.
Oliver Wilson les pútt á St. Andrews í dag. Getty
Englendingurinn Oliver Wilson sigraði á Alfred Dunhill Links meistaramótinu sem kláraðist í dag en sigurinn er hans fyrsti á Evrópumótaröðinni á ferlinum. Fyrstu þrír hringirnir voru leiknir til skiptis á Kingsbarns, Carnoustie og St. Andrews völlunum í Skotlandi en lokahringurinn fór fram á þeim síðastnefnda.

Wilson lék hringina fjóra á samtals 17 höggum undir pari, einu höggi betur heldur en þeir Richie Ramsey, Rory McIlroy og Tommy Fleetwood, en sá síðastnefndi missti rúmlega þriggja metra pútt á lokaholunni til þess að knýja fram bráðabana.

Oliver Wilson hefur verið í mikilli lægð á undanförnum árum og kom inn í mótið í 972. sæti á heimslistanum. Hann var því mjög nálægt því að missa keppnisrétt sinn á Evrópumótaröðinni fyrir næsta ár en með sigrinum í dag á hann eflaust eftir að fljúga upp heimslistann auk þess að hann hefur tryggt sér keppnisrétt á mótaröðinni í tvö ár í viðbót.

Alfred Dunhill Links meistaramótið er eitt veglegasta mótið sem haldið er á Evrópumótaröðinni ár hvert en Wilson fékk rúmlega 96 milljónir króna í sinn hlut fyrir sigurinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×