Íslenski boltinn

Oliver og Baldvin í Breiðablik

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Oliver eftir að hann samdi við AGF.
Oliver eftir að hann samdi við AGF.
Oliver Sigurjónsson er kominn aftur til sín uppeldisfélags eftir að hafa verið á mála hjá AGF í Danmörku undanfarin ár.

Þá hafa Blikar einnig fengið Baldvin Sturluson að láni frá Stjörnunni til loka tímabilsins en þetta var staðfest á stuðningsmannavef Blika í dag.

Oliver er á nítjánda aldursári og á að baki leiki með öllum yngri landsliðum Íslands. Hann hélt utan til Danmerkur haustið 2011, þá sextán ára gamall.

„Mjög sáttur að fá að klæðast grænu treyjunni aftur,“ skrifaði hann á Twitter-síðu sína í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×