Viðskipti erlent

Olíuverð rauk upp í kjölfar loftárása í Jemen

ingvar haraldsson skrifar
Minnst þrettán óbreyttir borgarar féllu í loftárás Sádí-Araba nærri flugvellinum Sanaa í Jemen í dag.
Minnst þrettán óbreyttir borgarar féllu í loftárás Sádí-Araba nærri flugvellinum Sanaa í Jemen í dag. nordicphotos/afp
Heimsmarkaðsverð á olíu hækkaði um 6 prósent eftir að Sádi-Arabía, mesta olíuútflutningsríki heims, hóf loftárásir á uppreisnarmenn í Jemen. BBC greinir frá.

Fjárfestar óttuðust að deilan gæti dreifst til víðar og haft áhrif á olíuframleiðslu í Mið-Austurlöndum. Olíuverð fór þó að lækka á ný eftir að kom í ljós að ekki var talin hætta á að deilan hefði áhrif á olíuflutninga frá Mið-Austurlöndum.

Jemen, sem er á barmi borgarstyrjaldar, er staðsett við fjölfarna skipaflutningaleið. Fjárfestar óttast enn að Íranar blandist inn í deiluna sem gæti haft mikil áhrif á olíumarkaði.

Verð á Brent hráolíu fór hæst í 59.71 dollara á tunnu en hefur síðan þá fallið í 56,50 dollar á tunnu. Olíuverð hefur verið á uppleið undanfarnar vikur eftir að hafa farið lægst undir 54 dollara um miðjan mars.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×