Viðskipti erlent

Olíuverð ekki hærra í sjö mánuði

Sæunn Gísladóttir skrifar
Talið er að raskanir í framleiðslu bæði í Nígeríu og Venesúela hafi ýtt undir hækkun olíuverðs.
Talið er að raskanir í framleiðslu bæði í Nígeríu og Venesúela hafi ýtt undir hækkun olíuverðs.
Verð á Brent hráolíu hækkaði um rúmlega tvö prósent í viðskiptum í morgun og nam yfir 48,9 dollurum, jafnvirði sex þúsund íslenskra króna, á tunnu í fyrsta sinn síðan í október 2015.

Verð á bandarísku hráolíunni West Texas Intermediate hækkaði einnig um rúmlega tvö prósent og nam yfir 47,4 dollurum, 5.800 íslenskum krónum.

Talið er að raskanir í framleiðslu bæði í Nígeríu og Venesúela hafi ýtt undir hækkun olíuverðs. Spá greiningaraðila hjá Goldman Sachs sem var á jákvæðum nótum um hækkun olíuverðs ýtti einnig undir þróunina.

Hrávöruverð á olíu í Bandaríkjunum náði næstu hæðum á árinu í síðustu viku meðal annars vegna áhrifa af eldum á olíuframleiðslusvæðum í Kanada.

Fram kemur í grein Wall Street Journal um málið að spáð sé hækkun olíuverðs og að tunnan muni kosta í kringum fimmtíu dollara, 6.100 krónur, í haust. Bæði vegna minni framleiðslu og aukinni eftirspurn.

Tengdar fréttir

Heimilin hafa notið góðs af lækkunum

Helstu olíuframleiðendur heims funda á morgun um möguleika á samstilltu átaki til að sporna gegn offramboði á olíu. Niðurstaða fundarins gæti hækkað eða lækkað olíuverð. Olíuverð náði hæstu hæðum í vikunni meðal annars vegna v






Fleiri fréttir

Sjá meira


×