FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ NÝJAST 11:38

Biðst afsökunar á ummælum um nauðgunarmál

FRÉTTIR

Olíuóöld en ekki arabískt vor

Fréttablaðið Erlent 28. júlí 2012 19:55
Slökkviliðsmenn slökkva í rústum bíla sem sprengdir voru fyrir utan dómshúsið í Damaskus fyrr í sumar.
Slökkviliðsmenn slökkva í rústum bíla sem sprengdir voru fyrir utan dómshúsið í Damaskus fyrr í sumar.

Sýrland er nú í brennidepli vegna uppreisnarástands sem þar ríkir og hefur kostað rúmlega tuttugu þúsund manns lífið. Sýrlendingurinn Bashar Mustafa sagði Jóni Sigurði Eyjólfssyni blaðamanni, þegar þeir hittust á Spáni fyrir skömmu, að átökin hefðu ekkert með arabíska vorið að gera heldur sé þetta eitt olíustríðið enn. Hann segir lausnina ekki felast í því að koma forsetanum frá heldur að fá Bandaríkjamenn og aðrar þjóðir til að hætta að styrkja hryðjuverkamenn sem herja á Sýrlendinga.

Frá því í mars í fyrra hafa fregnir borist af átökum í Sýrlandi. Rúmlega tuttugu þúsund manns hafa látið lífið frá því átökin hófust og reglulega heyrum við fréttir af voðaverkum þar sem konur og börn liggja í valnum. Alþjóðasamfélagið, að Rússum og Kínverjum undanskildum, hafa lagt hart að forseta landsins, Bashar al-Assad, að hverfa með hersveitir sínar úr bæjum og borgum landsins. Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra Íslands, sagði í Fréttablaðinu þann 14. júní síðastliðinn að hann hefði hvatt til þess að Öryggisráðið tæki ákvörðun um að vísa stórfelldum brotum sýrlensku ríkisstjórnarinnar á mannréttindum og mannúðarlögum til Alþjóðadómstólsins.

Bashar Mustafa, sem er sýrlenskur doktorsnemi í fornleifafræði í Háskólanum í Granada, segir þessa kröfu byggja á misskilningi sem sé mjög útbreiddur og kannski ekki nema von, segir hann, því alþjóðlegir fréttamiðlar ali á þessum misskilningi. En hvað segir hann þá að sé raunverulega að gerast á Sýrlandi?

Í stríði við hryðjuverkamenn

"Ég ætla ekkert að útiloka það að einhver lítill hluti landsmanna hafi látið í sér heyra á torgum úti í anda arabíska vorsins," segir hann. "En ástandið í heimalandi mínu hefur ekkert með lýðræðisleg mótmæli né arabíska vorið að gera. Sannleikurinn er sá að við eigum í stríði við hryðjuverkasamtök sem styrkt eru af stjórnum Sádi-Arabíu, Katar, Tyrklands og síðast en ekki síst Bandaríkjanna. Það kann að hljóma undarlega en flestir Sýrlendingar vita að bæði bandaríski einkaherinn Black Water hefur látið til sín taka í landinu sem og Al-Kaída. Hryðjuverkamennirnir nauðga konum, drepa börn og eins hvern þann sem ekki vill veita þeim liðveislu. Við höfum heyrt í fréttum vestrænna miðla að fundist hafi fjöldagrafir með líkum tvö hundruð lögreglumanna. Það sér það hver maður að það eru ekki almennir borgarar í liði uppreisnarmanna sem eru ábyrgir fyrir því. Læknar, fræðimenn, dómarar og aðrir embættismenn eru í stöðugri hættu og margir hafa þegar fallið fyrir hendi þessara óyndismanna. Þeir starfa með svipuðum hætti og ETA-samtökin gerðu í Baskalandi, þeir eru bara mun herskárri."

Eitt olíustríðið enn

En af hverju ættu Bandaríkjamenn og Al-Kaída að vinna saman að eyðileggingu Sýrlands?

"Það er svo sem ekkert nýtt, þessi öfl hafa unnið saman áður, til dæmis í Afganistan gegn Sovétríkjunum. En svo ég setji þetta í rétt samhengi þá er best að velta því fyrir sér af hverju Rússar og Kínverjar fara gegn vilja hinna stórveldanna í þessum máli. Þá komumst við fljótt að því að þetta snýst um olíu einn ganginn enn. Þannig er mál með vexti að Rússar eru að leggja olíuleiðslur sem tengja Rússland, Kína, Indland, Afganistan, Íran, Írak og síðan Sýrland. Það kemur síðan í hlut okkar Sýrlendinga að dreifa olíubirgðunum frá Miðjarðarhafinu. Bandaríkjamenn missa vissulega gríðarleg ítök á svæðinu ef þetta gengur eftir svo nú þurfa þeir leppríki til að geta haft einhverja stjórn á þessu. Margir óttast að þeir vilji skipta Sýrlandi í þrjú ríki þar sem harðlínumenn myndu ráða stærstum hluta, alavítar öðrum hluta og svo hugsanlega kristnir þeim þriðja."

Lífið gengur sinn vanagang

Mustafa tilheyrir trúarhópi múslima sem nefndur er Alavítar. Innan við fimmtán prósent Sýrlendinga tilheyra þeim hópi en þar á meðal er Bashar al-Assad sem tók við forsetaembættinu árið 2000 af föður sínum Hafez. Sá gamli hafði setið við stjórnvölinn í ein 29 ár. Margir vilja því meina að veldi þessa minnihlutahóps sé um of og stemma þurfi stigu við því.

Bashar Mustafa er frá Tartus sem er sextíu þúsund manna borg á ströndinni norðan Líbanons. Hann fór síðast til síns heima í febrúar síðastliðnum og dvaldi þar í einn og hálfan mánuð. Blaðamanni lék forvitni á að vita hvernig ástandið kom honum fyrir sjónir þá.

"Það er í raun alveg ótrúlegt hvað það bar lítið á þessum átökum víðast hvar þá. Reyndar var flugvöllurinn í Damaskus nær tómur þegar ég kom þangað en á götum höfuðborgarinnar var ekki annað að sjá en lífið gengi sinn vanagang. Tartus, heimaborg mín, er ekki nema 150 kílómetra frá Homs, borginni þar sem átökin hófust. Samt bar ekki á neinu og í raun fannst mér alveg ótrúlegt að sitja í rólegheitunum heima og sjá myndir af vígvellinum í Homs."

Telja að forsetinn standi þetta af sér

En finnst þér ekki að forsetinn ætti að stíga niður til að lægja öldurnar?

"Flestir þeir sem ég tala við eru sannfærðir um að Bashar al-Assad muni komast í gegnum þessar hremmingar eins undarlega og það kann að hljóma í eyrum þeirra sem eru vanir að fá fréttir þar sem honum er lýst sem trylltum einræðisherra sem brytji landa sína í spað. Ég vil taka það fram að ég er enginn sérstakur stuðningsmaður al-Assads, það má margt út á hann setja, en ég styð hann hundrað prósent í þeim hryllingi sem hann stendur nú frammi fyrir. Það gera líka flestir landa minna, ég myndi segja að hann hefði stuðning sjötíu prósenta þjóðarinnar en það kemur betur í ljós árið 2014 en þá eru næstu forsetakosningar á Sýrlandi. Hann á líka sína óvini og stjórnarandstaðan deilir hart á hann en hún gengur þó ekki svo langt að blessa þennan hrylling sem hryðjuverkamennirnir standa fyrir, það er einn misskilningurinn enn sem of oft heyrist á Vesturlöndum."

Hætta á heimsstyrjöld

Heldur þú virkilega að Bashar al-Assad verði enn þá til taks fyrir sýrlenska alþýðu eftir tvö ár?

"Ég vona að umheimurinn átti sig á því að hann sé ekki vandamálið á Sýrlandi og ég efast um að stórveldin láti kné fylgja kviði í þessu máli því þetta er svo flókið mál og samtvinnað hagsmunum annarra stórvelda þannig að hver sem ekki vill upplifa þriðju heimsstyrjöldina myndi hugsa sig vel um áður en hann léti til skarar skríða."

Orð til Össurar

Utanríkisráðherra Íslendinga sagði nýlega að hugsanlega þyrfti að bregðast við ástandinu í Sýrlandi með hernaðaraðgerðum. Hann gagnrýndi einnig stjórnarhætti Öryggisráðsins þar sem Rússar og Kínverjar geta staðið í vegi fyrir frekari aðgerðum í Sýrlandi. Hverju myndir þú svara honum?

"Hann er náttúrulega ekki einn um þessa skoðun en ég myndi vilja segja við hann og skoðanabræður hans að kynna sér hina hlið málsins áður en látið sé stórmannlega. Ef einhver vildi virkilega koma okkur Sýrlendingum til aðstoðar þá myndi hann berjast gegn því að stjórnir nokkurra ríkja væru að styrkja hryðjuverkamenn á svæðinu til þessara voðalegu verka."


Deila
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Erlent 20. júní 2013 11:38

Biðst afsökunar á ummælum um nauðgunarmál

Tennisstjarnan Serena Williams vakti reiði í síðustu viku. Meira
Erlent 20. júní 2013 10:00

Þrettán teknir í Tyrklandi í nótt

Lögreglan í Tyrklandi handtók þrettán mótmælendur í nótt, en þeir eru grunaðir um að hafa tekið þátt í ofbeldisverkum í óeirðunum sem hafa geysað um landið síðustu vikur. Meira
Erlent 20. júní 2013 09:30

Talibanar bjóða fangaskipti

Talibanar hafa gert Bandaríkjamönnum tilboð um að sleppa bandarískum hermanni úr haldi gegn því að fimm hátt settum liðsmönnum þeirra verði sleppt úr fangabúðunum í Guantanamo. Meira
Erlent 20. júní 2013 08:15

Tugmilljónir á flótta um allan heim

Skýrsla Flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna sýnir ófremdarástand þar sem um 45 milljónir manna, fleiri en síðustu 18 ár, hafa hrakist frá heimilum sínum vegna átaka og annars konar áfalla. Borgarast... Meira
Erlent 20. júní 2013 08:00

15 ára danskar stúlkur fái að ráða fóstureyðingu

Dönsk sjálfseignastofnun um siðferðileg álitaefni telur einráðið að fimmtán ára stúlkur fái að taka sjálfstæða ákvörðun um fóstureyðingar. Meira
Erlent 20. júní 2013 07:59

Óvæntur vinningur

Örlögin gripu heldur betur inn í hjá Ricardo Cerezo og eiginkonu hans í Illinois í Bandaríkjunum. Meira
Erlent 20. júní 2013 07:55

Skógareldar í Denver

Miklir kjarr- og skógareldar hafa enn á ný blossað upp í hlíðum í suðvesturhluta Denver. Meira
Erlent 20. júní 2013 07:36

WikiLeaks mun birta fleiri uppljóstranir frá Snowden

Julian Assange sagði að WikiLeaks væru að aðstoða Snowden við að fá hæli á Íslandi og gaf til kynna að frekari uppljósrana væri að vænta frá honum, með fulltingi WikiLeaks. Meira
Erlent 20. júní 2013 07:18

Obama gegn gróðurhúsaáhrifum

Barack Obama hyggst grípa til stórtækra aðgerða til að bregðast við mengun þeirri sem talin er valda hlýnun jarðar. Meira
Erlent 19. júní 2013 23:43

James Gandolfini látinn

James Gandolfini er látinn samkvæmt TMZ fréttaveitunni. Þar segir að leikarinn hafi fengið hjartaáfall á Ítalíu í dag þar sem hann var viðstaddur kvikmyndahátíð. Meira
Erlent 19. júní 2013 22:06

Fundu líkamsleifar í garði Goodfellas-mafíósa

Bandaríska alríkislögreglan í samstarfi við lögregluna í New York fundu í vikunni líkamsleifar heima hjá mafíósanum Jimmy "the gent“ Burke, sem lést árið 1996 í fangelsi. Meira
Erlent 19. júní 2013 20:00

"Rangt að ætla að njósna um alla"

Kim Dotcom segir yfirvöld í Bandaríkjunum og fyrirtækið Leaseweb hafa eytt persónulegum gögnum þúsenda notenda Megaupload vefsins viðvörunarlaust. Meira
Erlent 19. júní 2013 16:45

Mæðgur beittar ofbeldi og látnar borða hundamat

Þrjú grunuð um að hafa haldið fatlaðri konu og barni hennar nauðugum í meira en ár. Meira
Erlent 19. júní 2013 11:45

Hersveitir sendar út

Enn er mótmælt kröftuglega í Brasilíu. Boðað hefur verið til samstöðumótmæla við Hallgrímskirkju á morgun. Meira
Erlent 19. júní 2013 10:04

Ferðamenn brottfluttir vegna mikilla flóða

Mikil flóð í Suðvestur Frakklandi hafa þvingað borgaryfirvöld í Lourdes til þess að loka hinum heilaga pílagrímastað og hefja brottflutning ferðamanna. Meira
Erlent 19. júní 2013 09:00

Segja sýknudóm yfir Knox gallaðan

Hæstiréttur Ítalíu deildi í gær harkalega á vinnubrögð áfrýjunardómstóls sem sýknaði hina bandarísku Amöndu Knox af morðákæru. Leggur rétturinn til að annar dómstóll verði skipaður til að taka málið u... Meira
Erlent 19. júní 2013 08:53

Svínskökk í stíum sínum

William von Scheneidau, bóndi í í Seattle í Bandaríkjunum, hefur hafið framleiðslu á Marijuanaöldum svínum. Meira
Erlent 19. júní 2013 07:36

Skafmiðasnillingur í Washington

Cary Collings í Washington, Bandaríkjunum er heppnari en flestir. Hann vann nýverið tvo stóra happadrættisvinninga á einum og sama sólarhringnum. Meira
Erlent 19. júní 2013 07:30

Tyrkneskir mótmælendur efndu til kyrrstöðumótmæla

Mótmælin í Tyrklandi tóku á sig nýja mynd í gær þar sem hópur andófsmanna gegn meintu ofríki stjórnvalda stóð einfaldlega grafkyrr á opinberum stöðum í stærstu borgum landsins. Meira
Erlent 19. júní 2013 07:00

Grunuð um að hafa reynt að kæfa ungan son sinn

Rúmlega tvítug norsk kona úrskurðuð í tveggja vikna gæsluvarðhald. Meira
Erlent 19. júní 2013 00:01

Karzai boðar friðarviðræður við talibana

Stjórnvöld í Afganistan tóku í dag formlega við stjórn öryggismála í landinu. Stefnt er að því að allar erlendar hersveitir verði farnar fyrir lok næsta árs. Hamid Karzai forseti boðar friðarviðræður ... Meira
Erlent 18. júní 2013 23:41

Enn leitað að Jimmy Hoffa

Alríkislögreglan í Bandaríkjunum hefur hafið uppgröft á landspildu rétt utan við Detroit í von um að finna lík verkalýðsforkólfsins Jimmy Hoffa. Meira
Erlent 18. júní 2013 23:40

Segir Íslendinga heltekna af golfi

Fréttastofan Reuters fjallar um golfáhuga Íslendinga á vefsíðu sinni en þar kemur fram að hér á landi séu flestir golfvellir miðað við höfðatölu í heiminum. Alls eru 65 golfvellir á Íslandi og eru því... Meira
Erlent 18. júní 2013 21:18

Játar ofbeldi fyrir lögreglu en neitar í fjölmiðlum

Listjöfurinn Charles Saatchi heldur enn fram sakleysi sínu, þrátt fyrir að hafa játað fyrir lögreglu í Lundúnum að hafa veist að eiginkonu sinni, sjónvarpskokknum Nigellu Lawson, með ofbeldi. Meira
Erlent 18. júní 2013 15:39

Réðust inn í mosku og sprengdu sig í loft upp

Að minnsta kosti 31 féll og 57 særðust í sjálfsmorðssprengjuárás í mosku Síta í Bagdad í dag. Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið
  • Skoðun

Mest lesið

Forsíða / Fréttir / Erlent / Olíuóöld en ekki arabískt vor
365 miðlar ehf.
Skaftahlíð 24
105 Reykjavík
sími 512 5000