Innlent

Ólíklegt að Birna hafi farið úr landi

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Lögregla biðlar til þeirra sem kunna að hafa einhverjar upplýsingar að hafa samband við lögreglu.
Lögregla biðlar til þeirra sem kunna að hafa einhverjar upplýsingar að hafa samband við lögreglu. vísir/skjáskot
Lögreglan hefur úr litlu að moða en lítur hvarf Birnu Brjánsdóttur mjög alvarlegum augum. Ekkert bendir til þess að hún hafi framið sjálfsvíg en lögregla útilokar ekkert á þessu stigi málsins. Þetta kom fram á blaðamannafundi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu síðdegis í dag.

Fram kom á fundinum að Birna er nýhætt með kærastanum sínum. Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn á rannsóknardeild lögreglunnar, sagði við Vísi að blaðamannafundinum loknum að rætt hefði verið við kærastann fyrrverandi. Hann liggur ekki undir grun frekar en nokkur annar en hann er búsettur erlendis.

Á fundinum kom fram að Birna skemmti sér á Húrra um nóttina og ekkert bendi til þess að neitt hafi amað að henni þar. Hún hafi virkað hress . Hún hafi svo gengið Austurstrætið í austurátt, upp Bankastræti og svo Laugaveg. Hún birtist hins vegar ekki í eftirlitsmyndavél við Laugaveg 31.

Telur lögregla líklegast að hún hafi annaðhvort haldið niður Vatnsstíg eða farið upp í rauðan Kia Rio bíl sem var ekið niður Laugaveginn á sömu mínútu og slóðum og Birna var stödd.

Mál Birnu er rannsakað sem mannshvarf á þessu stigi en ekki sakamál. Fram kom að slökkt var á síma Birnu af mannavöldum klukkan 5:50 um nóttina, hann varð ekki batteríslaus. Lögregla fengi upplýsingar um leið og kveikt yrði aftur á símanum.

Grímur Grímsson, yfirmaður á rannsóknardeild lögreglunnar, sagði að við leitina væri miðað við að Birna væri enn á lífi. Þá er talið mjög ólíklegt að Birna hafi farið úr landi en Lögreglan á Suðurnesjum hefur skoðað eftirlitsmyndavélar í flugstöðinni í Keflavík í dag.

Sem fyrr segir telur lögregla líklegt að Birna hafi þegið far með Kia Rio bílnum en vill fyrst og fremst ná tali af ökumanni bifreiðarinnar til að ræða við hann. Ekki er vitað til þess að Birna hafi notfært sér skutlþjónustu áður.

Rætt verður við móður og bestu vinkonu Birnu í kvöldfréttatíma Stöðvar 2.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×