Sport

Ólík og áhugaverð sjónarhorn í boði á ráðstefnu á Íslandi um lyfjamál í íþróttaheiminum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Michael Rasmussen í gulu treyjunni í Tour de France árið 1997. Hann flytur athyglisverðlan fyrirlestur á ráðstefnu um lyfjamál.
Michael Rasmussen í gulu treyjunni í Tour de France árið 1997. Hann flytur athyglisverðlan fyrirlestur á ráðstefnu um lyfjamál. Vísir/Getty
Þrír fyrirlesarar með mjög ólíka aðkomu að lyfjamálum í íþróttum verða með fyrirlestur á ráðstefna um lyfjamál íþróttahreyfingarinnar sem haldin verður á fimmtudaginn í Háskólanum í Reykjavík. Ráðstefnan er hluti af WOW Reykjavik International Games 2017.

Einn af fyrirlesurunum þremur er  Hajo Seppelt. Seppelt er rannsóknarblaðamaður sem starfar m.a. fyrir ARD, er sá sem gerði heimildarmyndirnar í samvinnu við rússnesku uppljóstrarana sem á sínum tíma komu upp um stórfellt misferli. Síðar kom í ljós að umsvifin voru meiri en fyrst var talið, enda var stórum hluta rússneskra íþróttamanna meinuð þátttaka á ÓL í Ríó.

Úr allt annarri átt kemur síðan fyrrum Tour de France hjólreiðamaðurinn Michael Rasmussen sem hefur viðurkennt stórfellda lyfjamisnotkun á meðan á ferlinum stóð. Hann keppti á sama tíma og Lance Armstrong.

Þriðji erlendi fyrirlesarinn er síðan Dr. Ron Maughan sem er sérfræðingur í íþróttanæringarfræði og fæðubótarefni og hefur leitt þann málaflokk hjá Alþjóðaólympíunefndinni (IOC) frá árinu 2002. Hann mun fjalla um hætturnar við notkun fæðubótarefna í sínu erindi. Hvað ber íþróttamönnum að varast og hafa í huga þegar þeir neyta fæðubótarefna?

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands og Íþróttabandalag Reykjavíkur standa fyrir ráðstefnunni sem fer fram í Háskólanum í Reykjavík þann 26. janúar næstkomandi frá klukkan 17.30 til 20.30. Það er hægt að skrá sig á ráðstefnuna fram að miðnætti 25. janúar.

Í tengslum við WOW Reykjavik International Games 2017 standa Íþróttabandalag Reykjavíkur og Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands fyrir tveimur ráðstefnum um íþróttatengd málefni í samstarfi við Háskólann í Reykjavík. Sex erlendir fyrirlesarar munu flytja áhugaverð erindi á ensku. Það má finna allt um þessar tvær ráðstefnur hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×