Handbolti

Óli Stef: Kannski kem ég ekki aftur

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Ólafur Stefánsson tók sér frí frá þjálfun eftir eitt ár í starfi.
Ólafur Stefánsson tók sér frí frá þjálfun eftir eitt ár í starfi. vísir/stefán
Ólafur Stefánsson, sem tók sér frí frá þjálfun Vals í Olís-deild karla í handbolta, er ekki viss um að hann snúi aftur eins og til stóð.

Ólafur, sem kom liðinu í úrslitakeppnina á sínu fyrsta tímabili, sagði óvænt skilið við Valsliðið skömmu fyrir tímabilið til að einbeita sér að þróun nýs smáforrits fyrir spjaldtölvur og síma.

Jón Kristjánsson og Óskar Bjarni Óskarsson tóku við liðinu og eru með það á toppi deildarinnar þar sem liðið verður yfir áramótin og í HM-fríinu.

„Mér finnst liðið gott. Menn eru að standa sig gríðarlega vel og margir leikmenn hafa vaxið gríðarlega í leik sínum,“ segir Ólafur við fimmeinn.is.

Hann segist sjá sitt handbragð á liðinu. „Já, ég á nokkuð mikið í þessu liði, en Jón og Óskar eru einnig að gera helling. Ég lagði alltaf upp með að spila ákveðna vörn og kannski ögn ákveðnari en liðið spilar í dag,“ segir Ólafur sem hefur ekki mætt á æfingu síðan hann tók sér frí.

„Ég hef ekki komið á neina æfingu með liðinu, en ég er á leikjum og horfi á liðið spila,“ segir hann.

Í viðtali við Fréttablaðið fyrr í mánuðinum sagði Ómar Ómarsson, formaður handknattleiksdeildar Vals, að óvíst væri hvort Ólafur sneri aftur til liðsins og tæki við þjálfun þess á ný eftir áramót.

„Við erum að einbeita okkur að því að klára þá leiki sem eftir eru og svo tökum við á því þegar það klárast,“ sagði Ómar. „En það er alveg inni í myndinni.“

Sjálfur segir Ólafur það vel mögulegt að hann snúi ekki aftur og láti þá Jón og Óskar Bjarna um að stýra liðinu.

„Kannski kem ég ekki. Það er samt erfitt fyrir mig að staðfesta hvort ég komi eða ekki. Það er ennþá fullt að gera hjá mér og verður sjálfsagt áfram. Það gæti alveg eins gerst að ég komist ekki eftir áramót og ef það dregst þá er ljóst að ég kæmi þá ekkert aftur fyrr en þá á næsta ári,“ segir Ólafur Stefánsson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×