Íslenski boltinn

Óli Jó: Teljum stigin að móti loknu | Myndband

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ólafur Jóhannesson, þjálfari Vals, mætir í Kaplakrika á morgun í fyrsta skipti síðan hann hætti sem þjálfari FH árið 2007.

Ólafur náði frábærum árangri með FH en undir hans stjórn varð liðið þrívegis Íslandsmeistari og einu sinni bikarmeistari.

„Það verður gaman að koma þangað. Mér hefur yfirleitt gengið vel í Krikanum og vonandi verður það svoleiðis áfram,“ sagði Ólafur í samtali við Hörð Magnússon í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Valsmenn hafa spilað vel undir stjórn Ólafs í sumar og eru í 3. sæti Pepsi-deildarinnar, aðeins þremur stigum frá toppliði FH sem þeir geta náð að stigum með sigri á morgun. Þá er Valur kominn í úrslit Borgunarbikarsins.

En kemur þessi góði árangur Vals Ólafi á óvart?

„Bæði og. En jú, ég verð að viðurkenna að ef einhver hefði boðið mér að vera rétt fyrir aftan FH og KR á þessum tímapunkti hefði ég þegið það,“ sagði Ólafur.

„En eins og ég hef sagt áður erum við með fínt fótboltalið og höfum náð að búa til gott lið hérna,“ asgði Ólafur sem segir að leikurinn gegn FH sé stærsta próf Vals á tímabilinu.

En hvað finnst Ólafi um frammistöðu síns gamla liðs á tímabilinu?

„FH-liðið er skipað frábærum leikmönnum og er í efsta sæti deildarinnar. Ég held það sé ekki hægt að gera betur en þeir eru að gera núna. Þeir eru að spila mjög vel,“ sagði Ólafur kankvís en getur Valur farið alla leið og unnið Íslandsmeistaratitilinn?

„Við erum s.s. ekki farnir að velta því fyrir okkur en við erum í þessum efri pakka eins og staðan er núna og viljum vera þar sem lengst. Svo teljum við bara upp úr pokunum þegar mótið er búið.“

Viðtalið í heild sinni má sjá hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×