Handbolti

Óli Guðmunds: Vonandi stöngin inn hjá mér í dag

Arnar Björnsson skrifar
„Mér hefur liðið nokkuð vel í þessum leikjum hingað til. Við erum komnir í 16-liða úrslit og erum sáttir með það. Þó svo að við hefðum kannski viljað fá annan mótherja. En nú er þetta bara úrslitakeppni,“ segir skyttan Ólafur Guðmundsson.    

Hvernig á að eiga við Frakkana?

„Þeir eru erfiðir, þungir og sterkir og með mikla reynslu. Þeir hafa fengið mörg verðlaun en það verða jafnmargir í liði og verkefnið er spennandi. Ef vörnin verður eins góð, hraðaupphlaupin fylgja í kjölfarið og nýtingin í sókninni verður aðeins betri þá er allt hægt. Við verðum að leggja okkur alla fram og sjá hverju það skilar.“

Þú hefur verið gríðarlega öflugur í vörninni en svolítið stöngin út hjá þér í sókninni. Missa menn ekki sjálfstraustið þegar illa gengur að skora?

„Það verður vonandi stöngin inn núna. Ég reyni alltaf að halda áfram og gefa allt í þetta og berjast í vörninni. Það er það sem maður verður að gera að leggja sig 100 prósent fram og sjá hverju það skilar.“

Er ekki erfitt að taka af skarið eftir að hafa klikkað á skoti í sókninni á undan?

„Nei, maður verður að hafa sjálfstraust og halda áfram að skjóta á markið og reyna að hjálpa liðinu hvort sem maður er að skjóta, gefa eða að spila vörn. Maður gegnir sínu hlutverki og heldur áfram.“    

Þú ert harður á því að við getum veitt Frökkum harða keppni?

„Að sjálfsögðu. Við erum komnir í 16-liða úrslit og það er engin tilviljun að við erum búnir að vinna fyrir þessum miða.“

Ekki missa af neinu sem gerist á HM í Frakklandi. Vísir er með öflugt fréttateymi á mótinu sem færir ykkur allar nýjustu fréttirnar af strákunum okkar. Fylgdu okkur á Facebook, Twitter og Snapchat (sport365).


Tengdar fréttir

Allt undir á stærsta sviði í sögu HM

Það verður væntanlega sett áhorfendamet þegar Ísland spilar við Frakkland í 16-liða úrslitum á HM. Leikurinn fer fram á knattspyrnuleikvangi sem er búið að breyta í handboltahöll. Von er á um 28.000 manns.

Ásgeir: Frakkarnir bera mikla virðingu fyrir okkur

Ásgeir Örn Hallgrímsson er búinn að spila í Frakklandi í fimm ár og þekkir því vel til í frönskum handbolta. Hvað segir hann um umfjöllunina um mótið hérna í Frakklandi?

Björgvin Páll: Lofaði Gunnleifi að halda hreinu í dag

Markverðirnir verða sem fyrr í sviðsljósinu í dag og þeirra bíður ekki auðvelt verkefni frekar en annarra. Björgvin Páll Gústavsson var byrjaður að undirbúa sig í gær er hann kom til Lille.

Aron Rafn veikur | Allir aðrir æfa

Strákarnir okkar eru nú á leið á æfingu á fótboltavellinum glæsilega Stade Pierre-Mauroy en það verður mikil upplifun fyrir þá að koma þangað inn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×