Erlent

Ólett kona handtekin eftir að hafa birt mynd af sér í stolnum kjól

Samúel Karl Ólason skrifar
Mynd/Facebook
Danielle Saxton var handtekin eftir að hafa birt myndir af sér á Facebook í kjól sem hún hafði stolið, ásamt öðrum flíkum, úr lítilli verslun í Illinois í Bandaríkjunum. Samkvæmt fréttaveitunni Reuters er hún sögð hafa stolið flíkunum úr Morties Boutique, en sonur eiganda verslunarinnar hafði séð hafa yfirgefa verslunina.

Hann grunaði að hún hefði hnuplað einhverju og á upptökum úr öryggismyndavélum sá hann Danielle stela flíkunum. Þá sagði hann frá þjófnaðinum á Facebook síðu verslunarinnar. Innan tveggja klukkutíma hafði einhver deilt slóðinni á myndir Danielle af sér í kjólnum á síðunni.

Við myndina hafði hún skrifað: „Elska kjólinn minn.“

Gay Williams Morton, eigandi verslunarinnar sagði lögreglunni strax frá þessu og hún var handtekin fljótlega.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×